19.9.2008 | 22:22
Féleg fyrirmynd !
Hvað hefur íslenska lögreglan unnið til að verða fyrirmynd ?
Ekki upplýsti hún Geirfinnsmálið, jafnvel þótt þeir pyntuðu ungmennin í marga mánuði, jafnvel ár. Reyndar er engin sönnun fyrir morði í því máli.
Hvað með leigubílstjórann í Laugalæknum ?, jafnvel þótt morðinginn "játaði" á sig morðið, gátu þeir ekki lokað hann inni.
Batta rauða málið? Og fleiri og fleiri.
Eigum við að færa okkur nær nútímanum ?
Er löggan senditík pólitíkusa og útlendinga ? Falun Gong !!
Hvað var þetta með húfulausu pylsulöggurnar ? Fyrirmynd?? Eða leynilögguna með jeppadelluna?, eða fulla lögreglustjórann?, eða son lögreglustjórans í kláminu?.
Þrátt fyrir sönnunargögn á stuðaranum, hefur ekki ennþá neinn verið sakfelldur fyrir drápið á fjögurra ára dreng í Keflavík, reyndar slapp sá grunaði til Póllands, vegna dugleysis lögreglunnar.
Var lögreglan til fyrirmyndar í mótmælum vörubílstjóra?, með Gasmann í fararbroddi?.
Láta fyrirmyndar löggur kýla sig á nefið, og þora svo ekki að gera neitt í málinu?.
Er það til fyrirmyndar að geta ekki farið eftir verklagsreglum, og leyft eftirlýstum glæponum að fara úr landi?, eins og nýlegt dæmi sannar. Er það til fyrirmyndar, þegar yfirmenn í löggunni koma fyrir alþjóð, og segjast ekki geta haldið uppi lögum og reglum?.
Hvernig hefur lögreglunni tekist að upplýsa innbrot í yfirstandandi innbrotaöldu?
Eða er það stjórn lögreglumála, sem er til fyrirmyndar? Fækkun í lögregluliðinu, þegar fólki og glæpum fjölgar. Bensínlaus og skítblönk umdæmi útum allt. Ekki hægt að endurnýja bílaflota landsbyggða löggunnar.
Ég held að það sé alveg sama hvert litið er innan lögreglunnar, að fyrirmyndir er erfitt að finna. Og nú síðast í Mbl. í dag segist lögreglan vera hætt "að eltast við hinn venjulega Íslending", og einbeita sér að stórglæpamönnum í staðinn. Á meðan þeir eltast við einn "alvöru" þá sleppa tugir "venjulegra".
Ég held að ástandið í Litháen hljóti að vera afskaplega slæmt, fyrst þeir geta tekið vinnubrögð íslensku lögreglunnar sér til fyrirmyndar.
Og núna síðasta upphlaupið í Keflavík, ekki er það til fyrirmyndar, eða hvað ?
![]() |
Íslenska lögreglan fyrirmynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.9.2008 kl. 07:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.9.2008 | 23:26
Sniðgöngum Cafe Margret !!
Horst Wulfgang Mueller, eigandi Cafe Margret við afleggjarann að
Breiðdalsvík, gekk berserksgang á skrifstofu AFLS, verkalýðsfélags á
Egilsstöðum í dag, Mánudag. Forsaga málsins er, að undanfarið hefur
verkalýðsfélagið fengið upplýsingar um, að ekki væri allt eins og það
á að vera, í sambandi við kaup og kjör starfsfólksins. Hefur skoðun
á starfseminni leitt í ljós að grunsemdir um "nútíma þrælahald" eiga
við rök að styðjast. Hefur Horst notað sér samtök ungs fólks í
Evrópu, sem leitar sér að vinnu í öðrum löndum, í von um að kynnast
landi og þjóð, og þéna smávegis í leiðinni. Komið hefur í ljós, að
starfsfólk Cafe Margret hefur fengið laun, sem eru langt undir
löglegum lágmarkslaunum, og aðbúnaður hefur verið slæmur. Hefur
jafnvel þurft lögreglufylgd til að "bjarga" starfsfólki þaðan. Það
virðist því ljóst, að þarna er nútíma þrælahald í gangi, samkvæmt
þessarri frétt Mbl.is: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/
2008/09/01/stimpingar_a_skrifstofu_afls/
Ég hvet alla leiðsögumenn, og aðra sem leið eiga um Austurland, að
sniðganga Cafe Margret, til að sýna starfsfólkinu stuðning, þar til
að málum hefur verið kippt í liðinn. Við verðum að standa saman, og
verja löglega hagsmuni starfsfólks í ferðaþjónustu, sem og alls
verkalýðs í landinu.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2008 | 23:35
Cancelled!!!!
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2008 | 12:40
Fór á fjöll !
Ég brá undir mig betri hjólunum, um helgina, og fór á fjöll.
Fyrst var ekið um Þjórsárdalinn, litið á hjólhýsabyggðina við Ásólfsstaði, og rifjuð upp sagan af Gauki Þrándilssyni. Síðan framhjá einhverri ljótustu skógrækt landsins, þar sem er eins og trjánum hafi verið plantað af Þýskri nákvæmni með tommustokk og áttavita, svo beinar eru línurnar. Einnig rifjaðist upp slys, sem varð á þessum slóðum fyrir nokkrum árum, þegar jeppi, fullur af ferðamönnum á leið í Landmannalaugar valt á veginum. Aldrei fékkst úr því skorið hvað, nákvæmlega varð til þess að bíllinn valt, en ýmsar kenningar heyrðust. Þá var einnig talað um að gera kröfur til bíla og ökumanna skýrar, svo að ekki leiki neinn vafi á hvað þarf til að mega aka með ferðamenn á sérútbúnum bílum um landið. Einhvernveginn finnst mér eins og það hafi ekki komið neitt útúr því. A.m.k. eru eigendur slíkra bíla ennþá krafðir um (og rukkaðir fyrir af hinu opinbera), gjöld, sem geta engan vegin staðist samkv. reglugerðum. Svo virðist sem hið opinbera haldi að með því að seilast nógu andskoti djúpt í vasa bíleigenda, geti það fríað sig undan ábyrgð sinni á að gera hlutina öruggari fyrir ferðafólk. Ég held því hinsvegar fram, að með endalausum, órökstuddum álögum, geri ríkið rekstrar umhverfi fyrirtækja óþarflega erfitt, og geti jafnvel stuðlað að erfileikum og óöryggi í rekstri, í stað þess að hlúa að, og styrkja stoðir atvinnuveganna.
Mér dettur stundum í hug að ríkið er eins og alkóhólisti, heimtar meir og meir, en gefur ekkert í staðinn, og á endanum fer allt í kaldakol. Þá er bara að halda sér þurrum á hnefanum í smá tíma, og gefa fólki smá von, um að nú fari allt að lagast. Blíðmælgin og loforðin eru hástemmd, og allt virðist í blóma, en þá fellur ríkið (alkinn), og allt fer í sama horfið aftur. Og kjósendur eru eins og þrusumeðvirk fjölskylda, láta ljúga að sér aftur og aftur, og kjósa sömu svikarana í næstu kosningum.
Þetta var pólítíska hugleiðing dagsins, maður bara gleymir sér alveg. En áfram með vinnuna fyrir ferðamálastjóra:
Efst í Þjórsárdalnum var ferðafélögunum orðið mál að pissa, enda hafði verið stoppað fyrir pylsu og kók, og ís, í Árnesi. Mig minnti að það væri salerni við Stöng, svo að þangað var haldið, (því við kunnum ekki við að fara á þjóðveldis salernin án þess að kaupa eitthvað, og því tímdum við ekki, enda margbúin að koma þangað). Eftir að hafa ekið stórskemmdan, og varla fólksbílafæran veginn inn að illa förnum, og útskitnum rústum Stangar, fundum við ekkert salerni. Áfram var ekið upp að Gjánni, enda á fjallabíl. www.nat.is:images:gjain_thjorsardalur.jpg.webloc Þar var fullt af fólki að njóta þessa fallegasta staðar Íslands, en mér var hugsað til Hvannarinnar, er þetta þessi hættulega ?. Nú urðum við að fara bak við stóra steina, og bera á, eins og sannir túristar, okkar framlag til uppgræðslu landsins. Eftir að hafa skoðað Sultartangasíflu, og rifjað upp ógleymanlega tíma við byggingu þá, stærstu stíflu sinnar tegunar í Evrópu, og kynni af Jóa Begg og hans mönnum, var haldið í Hótel Háland. www.hotelhighland.is/is og gist þar. Hótel Háland er eina hótelið á þessum slóðum, sem býður uppá herbergi með baði, og þjónustu í veitingasal, og það verður að segjast að þjónustan í veitingasalnum, og gæði matarins komu skemmtilega á óvart, eftir að hafa kynnst sífellt hrakandi þjónustu á hótelum um allt land, þá hefur Hótel Háland haldið sínum klassa, hvað þjónustu varðar, og svo var þjónustufólkið líka brosandi, sem gerir upplifunina enn betri.
Eftir góða nótt á hótelinu, og smá morgunmat í Hrauneyjum, (sváfum pínulítið yfir okkur), var haldið í Landmannalaugar, eftir versta vegi Íslands.
"Góða frú ferðamálastjóri": Við fáum til landsins um það bil 600.000 ferðamenn á ári. Flestir sem taka bílaleigubíl tala um vegina með hryllingi og þakka sínum sæla, að hafa sloppið stórslysa laust frá þeim. En því miður er ekki alltaf svo, þó að flestir tali um "hinn alræmda" Dettifossveg, þá er annar miklu verri: Vegurinn frá þjóðvegi 26, framhjá Hrauneyjalóni og yfir Sigöldu, eins og sést á Púströrum, hljóðkútum, dempurum, drullusokkum og öðrum bílapörtum, sem liggja á, eða við þennann kafla. Værirðu ekki til í að beita þér fyrir einhverskonar vegabótum þarna ? Ef þú ert ekki viss um hvaða kafla ég er að tala um, þá skal ég keyra hann, þegar þú þiggur boð mitt um "einkaferð" um ferðamanna staði landsins.
Í fyrra settu þau heiðurshjón Nína og Smári upp skilti, sem áttu að koma skilaboðum um bann við utanvegaakstri til skila, þau sjást ekki lengur, þarna mætti umhverfisráðherra gera eitthvað. www.landmannalaugar.info Við Frostastaðavatn höfðu mótorhjólaníðingar verið á ferð, eins og sjá má (Hér átti að vera mynd, en eitthvað gekk illa að hlaða henni niður, kannski vegna biluninnar ?) Reyndar datt Smára í hug, að hér væri sá sami á ferð og fyrir 4 árum, og sagði: "Ætli honum hafi ekki fundist gömlu förin óþarflega gróin".
"Háþrýstiþvegin" salernin í Landmannalaugum voru í þokkalegu lagi, og fannst að lokum eitt af fjórum með pappír, en Landvörðurinn ætlaði að líta á það þegar hún væri búin með kaffið. En það besta við Laugarnar í suddanum, fannst mér þó kaffið í "Háfjalla mollinu" hjá Nínu og Smára.
Í Áfangagili er prýðisgott og hreint vatnssalerni, enda rekið af einkaaðila: www.afangagil.info
Eftir jeppaferð uppí 1000 metra hæð í Hekluhlíðar, var haldið heim á leið, og á morgum byrjar vinnan aftur.
P.s. getur einhver upplýst mig um hvort eitthvað er að, eða hvort ég kann ekki að setja inn myndir ?
Börkur, sem vill halda áfram að skila skýrslum með myndum, fyrir ferðamálastjóra, og alla, sem hafa áhuga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2008 | 00:49
Borgfirðingar bara góðir !
Borgfirðingar komu mér ekki á óvart, þeir vita hverjar eru þarfir ferðamanna. Móttökurnar í Hyrnunni eru alltaf þær sömu, góðar. Heitt kaffi, og veitingar, og starfsfólk upplýsingamiðstöðvarinnar til fyrirmyndar, leysa úr öllum vanda, og svara spurningum með bros á vör. Hinsvegar er það til mikilla vansa, hve lítið pláss þau hafa.
Geiturnar á Háafelli eru sérstakar, og alltaf virði stopps, ferðamennirnir eru alltaf jafn hrifnir af þeim og að heyra sögu geitabúskapar á Íslandi.
Fossarnir, Hraun og Barna, eru miklar náttúruperlur, og umhverfi þeirra til sóma. Þar er fyrst og fremst að þakka því að umsjón svæðisins er í höndum á ágætisfólki, sem leggur metnað í að hafa hlutina í lagi. Salernisaðstaða er opin allt árið um kring, upphituð og hrein, og mættu aðrir taka það sér til fyrirmyndar. Þá eru skóburstar heilir, og mér er ekki grunlaust um að jafnvel sé skift um bursta í þeim eftir þörfum. Svæðið og aðkoma þess fær ágætiseinkunn frá mér.
Aðstaðan við Hraunfossa, hreint og fínt, til sóma, og....
Námaskarð ! Þarf fleiri orð um þetta ?
Við Snorralaug í Reykholti eru framkvæmdir, verið er að gera nýjan göngustíg, og eitthvað fleira. Vafalaust verður voða fínt þar þegar yfir lýkur, en samt finnst mér að það mætti tína myntina uppúr lauginni (er hægt að tala um peningamengun ?), og laga brotnar hellur sem skapa slysahættu, og eru til lýta.
Miklar framkvæmdir hafa verið við Deildartunguhver í sumar, og eru þær efalaust til bóta. En spurningin er þó, verður sett upp salernisaðstaða ? Mér finnst að þegar sett eru upp borð og önnur aðstaða til að matast, þá eigi að fylgja salernisaðstaða. Mér hefur líka fundist ótrúlega lítið gert til að varna slysum í hvernum, og nánasta umhverfi. T.d. er engin alvöru girðing til að halda fólki frá strompum með sjóðheitri gufu, sem eru vestan við dæluhúsið. Og hvergi í heiminum væri fólki leyft að nálgast sjóðandi hver með aðeins 50 Cm. girðingu til að varna fólki að detta í sjóðandi vatnið. Og hvað er þetta með að kasta peningum í allt vatn sem fólk sér ?. Væri ekki í lagi að setja upp skilti, sem bönnuðu slíkt, eins og á Þingvöllum t.d.?.
Í Hvalfirði er ekki mikið um að vera, en þó voru nokkrir að vinna við viðhald á eigum Hvals hf.. Ég legg til að Kristján Loftsson og hans fólk komi upp upplýsingaskilti um hvalveiðar við Ísland, frá upphafi og til þessa dags, og komi því fyrir í stöðinni. Ég hef fundið fyrir miklum áhuga á hvalveiðum, þegar ég hef farið með ferðamenn um stöðina, og sagt þeim frá hvalveiðum við Ísland. T.d. eru ekki margir, sem vita að hvalveiðar voru bannaðar við Ísland til að vernda stofninn, og reyna að stöðva útrýmingu vissra tegunda sem voru veiddar gengdarlaust af Bretum, Frökkum og Norðmönnum. Eða þá staðreynd, að Íslendingar hafa aldrei útrýmt neinni hvalategund, það hafa aðrar þjóðir gert. Eða að hvalveiðar hafa alltaf verið stundaðar af Íslendingum í fullkominni sátt við álit færustu vísindamanna á því sviði, með verndun og viðhald stofnsins í huga.
Að loknum góðum degi var komið til borgarinnar, og tekist á við stress stórborgarinnar, með öllum sínum fylgikvillum.
Ég hef ekki sagt margt um hótel eða veitingastaði, en eftir mörg ár í bransanum, sem "atvinnuferðamaður", hef ég séð og kynnst mörgu misjöfnu. Ég hef verið hvattur til að segja frá, og er oft spurður um faglegt álit, þegar velja á hótel, því að það er svo misjafnt hvað hentar hverjum, og verðlag og stjörnur eru oft lítil trygging fyrir gæðum gistingar. Kannski ég taki hótelin fyrir í einhverju blogginu, hver veit, myndavélin er alltaf með í för.
23.7.2008 | 08:13
Mývetningar eru "allright"!
Fegurð Mývatnssveitar brást ekki fyrr en fyrri daginn. Ekkert til að nöldra yfir, aldrei þessu vant, ég veit ekki hvort þessi umræða, sem farið hefur af stað uppá síðkastið hefur orðið til þess að landverðir og aðrir sem að ferlismálum ferðafólks, eru betur vakandi og áhugasamari um að gera vel, en hitt hefur mér fundist, að hlutirnir séu í betra lagi en oft áður. En alltaf má gera betur, t.d. var mér sagt að klósettið fyrir fatlaða á Leirhnjúks svæðinu væri búið að vera stíflað dögum saman, og lekinn í vatnslásnum væri viðvarandi.
En það eru allavega nægar birgðir af pappír, á bak við læstar dyr.

Ferðamálastjóri hefur sent leiðsögumönnum beiðni, um að við gerumst einskonar spæjarar, og sendum athugasemdir um ýmislegt, sem betur mætti fara, á ferðamannastöðum. Mér finnst þetta óráð. Ég held að ef aðeins örfáir leiðsögumenn taki þetta alvarlega, þá verði þvílík skæðadrífa af bréfum til hennar, að það hreinlega þyrmi yfir hana, og öllu verði hent. Einnig set ég spurningarmerki við aðkomu Félags Leiðsögumanna að verkefninu, hvað á félagið að gera ?, sortera athugasemdirnar ?, og senda kannski bara þær sem því líst best á ?.
Ég held að félagið ætti ekki að koma nálægt þessu, orku þess er krafist við allt annað en að vera skrifstofa eða senditík ferðamálastjóra!.
Nær hefði verið nýr ferðamálastjóri færi í vísitasíu í eigin persónu um landið, og sæi með eigin augum og fyndi á eigin skrokki hvar skóinn kreppir að. Vegna mikilla afbókana hjá mér er ég á lausu á næstunni, og býð krafta mína endurgjaldslaust við að leiðsegja henni um ferðamannastaði Íslands, í svosem einni hringferð. Hún þyrfti aðeins að borga kostnað, ekkert annað.
En ég ætla ekki að láta mitt eftir liggja, en vegna þess að ég vil ekki eyða dýrmætum tíma skrifstofu okkar, eða formanns okkar ætla ég að nota bloggið:
Göngustígur í nýja hrauninu við Leirhnjúk, hér mætti setja brú !

Víða eru engar merkingar, sem sýna hvar má, og hvar má ekki ganga. Þetta fólk er á varasömum slóðum utan í Leirhnjúk.

Mikið held ég að menn hafi verið stoltir þegar þessi hellulögn við Víti var vígð.

En síðan þá, hefur hveraleirinn aldrei verið smúlaður af, og þess vegna....
Það sýnir vel áhugann á að hafa hlutina í lagi, að ennþá er skilti sem varar við "Snjóloftum"
þó að löngu sé allur snjór farinn. Kannski þeir taki skiltið þegar þeir koma til að smúla,
skifta um bursta í skóhreinsurunum við Víti og ...
Sem eru reyndar vel og vandlega merktir:
Hverjir "þeir" eru veit ég ekki. Landverðir segja að það sé ekki þeirra verk að hugsa um viðhald og hreinsun á þessu. Ferðamálaráð segist aðeins styrkja uppbygginguna, en komi viðhald og umhirða ekki við. Og sveitarstjórinn sagði mér í fyrra, að ferðamannastaðir í Mývatnssveit kæmu henni ekki við. Vonandi fæst einhver botn í þetta, og það sem fyrst, því nú eru Mývetningar byrjaðir að byggja langþráð salerni við Dimmuborgir. Og er ekki seinna væna, enda ferðamálaráð búið að styrkja mývetninga um 7 milljónir til verksins, vonandi gleymdist ekki að gera ráð fyrir rekstri og viðhaldi.
Margt fleira er hægt að segja um Mývatnssveit gott og miður gott, en hér læt ég staðar numið í þetta sinn, en ítreka boð mitt til ferðamálastjóra, um hringferð um veldi hennar á kostnaðarverði.
Ég verð á ferð um Snæfellsnes og Borgarfjörð á morgun, kannski ég tali um þá staði næst.
19.7.2008 | 01:06
Ég hef ákveðið að halda ferðadagbók !
Ég hef ákveðið að halda ferðadagbók, og segja frá upplifun minni af ferðum mínum um landið.
Ég er á ferð með uppáhalds ferðafólkið mitt, heittrúaða Gyðinga. Það hefur verið ánægjulegt, en um leið dálítið gremjulegt að fylgjast með viðbrögðum fólks vegna komu þessa fólks.
Flest hótelin hafa haft samband við mig, til að spyrja mig um "hvað má" og "hvað má ekki" í sambandi við matarvenjur fólksins. Þegar svo kokkarnir hafa áttað sig á að þetta er eins einfalt og þægilegt og hugsast getur, er viðkvæðið yfirleitt það sama: "Það voru vallir búnir að vara mig við, að þetta væri svo erfitt fólk, en svo er þetta bara elskulegt fólk, sem vill ekkert vesen, og sem minnst umstang þeirra vegna", "þetta er bara ekkert mál". Mér finnst gaman að þessu, en um leið gremst mér, að fólk skuli fyrirfram gera sér þær hugmyndir um Gyðinga, að þeir séu erfiðir, og það fylgi þeim alltaf vesen. Svo er alls ekki !.
Kom að Dettifossi í dag, um ellefu leytið, margar rútur á svæðinu, og margir þurftu á salerni að halda.
var það sem mætti fólki á einu salerninu, og
Maður hefði haldið að umræðan undanfarið hefði haft eitthvað að segja, en
þegar metnaðinn og áhugann vantar er ekki von á að eitthvað lagist.
Fór einnig á Hveri við Námafjall, og sá þessa líka fínu skóbursta, til að hreinsa
hveraleðjuna af skóm ferðafólks. Þeir eru vandlega merktir "Eign ferðamálaráðs".
Síðan þeir voru settir þarna hefur ekki verið skift um bursta, eða þeir endurnýjaðir, ekki einu sinni !!
Það myndi varla setja ferðaþjónustuna á hausinn að
endurnýja burstana eftir þörfum, ég hugsa að þeir kosti ekki meira en 300 kall stykkið í heildsölu hjá Blindra gerðinni. Og þá þarf bara að kenna unga fólkinu sem sér um landvörsluna að nota borvél og skrúfjárn.
Annars er þetta metnaðarleysi hjá starfsfólki hins opinbera alveg einstakt. Flestir sem starfa í ferðaþjónustu eru tilbúnir til að leggja á sig smá auka snúning til að veita bestu þjónustu, og virðast skilja gildi góðra minninga hjá ferðafólkinu, en svo er hið opinbera að draga lappirnar og starfsfólki þess skítsama hvort einhver er ánægður með störf þeirra eða ekki.
Talandi um aðstöðu ferðafólks á ferðamannastöðum, þá dettur manni í hug að ekkert eftirlit, eða eftirfylgni sé með styrkveitingum hins opinbera til ferðamála.
400 milljónum var veitt til hinna ýmsu mála nú í ársbyrjun, en lítum aðeins nánar á:
1.5 milljónir til bætts aðgengis við Skógafoss ?? Er eitthvað að aðgengi við fossinn ? Ég get ekki séð það. Einnig er athugandi að Eimskipafélag Íslands auglýsir og gortar sig af því að vera "með fossinn í fóstri", á stóru skilti sem þar er. Er þá verið að styrkja Eimskip ??
Ekkert hefur verið gert ennþá, ég bíð spenntur.
Þá var 1.5 milljónum veitt til að bæta aðgengi við Seljalandsfoss, og veitti ekki af. Gönguleiðin á bak við fossinn hefur þarfnast lagfæringar í mörg ár, og reyndar alveg furðulegt að ekki hafi heyrst af stórslysi þarna.
Ekkert hefur verið gert, Hvar eru peningarnir ?
Og 1.5 milljón var úthlutað til að byggja nýtt salerni í Mývatnssveit !! Hefði ekki verið nær að reyna að tryggja að hægt væri að hugsa aðeins um þau salerni, sem eru fyrir á staðnum ?? Eða á að bæta við fleirum pappírslausum - og biluðum salernum í Mývatnssveitina ?
Á sunnudag verð ég aftur í Mývatnssveit, og fer þá meðal annars að Víti, og Leirhnjúk. Einhvernveginn á ég ekki von á oðru en að þar sé allt við það sama: pappírslaus salerni, en nógur pappír fyrir innan glerið, þar sem enginn starfsmaður er, og áreiðanlega verður ekki búið að smúla hellulögnina við Víti, eða laga keðjuna. Verð með myndavélina á lofti, sjáum til.
Meira um það næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2008 | 23:12
Sendið ísbjörninn til Grænlands !!!
Mikið er ég ánægður með Björgvin umhverfisráðherra núna. Hann ætlar að þyggja boð Björgúlfs um að kosta flutning á bangsanum heim til Grænlands. Fyrir nokkru þáði forsetinn far með Björgúlfi, og var gagnrýndur fyrir, er Björgvin þá núna handbendi Björgúlfa ???
Annars fékk ég hringingu frá vini mínum á Grænlandi, hann man vel eftir Valla víðförla, og hvernig honum var komið í skotlínu veiðimanns á Grænlandi. Nú vill hann vita hvar á að sleppa birninum, honum þykir bjarndýrskjöt ljúffengt, og segir að auki, að það verði að drepa björninn strax, því að hugsanlega sé hann smitaður af einhverjum óþverra frá Íslandi. Riðu kannski ?, landlægur andskoti, eða fuglaflensu, var hann ekki að úða í sig æðarfugli ?
Það er allavega hárrétt ákvörðun hjá Björgvini, að bjarga ísbirninum frá skyttum Skagafjarðar, og auka þar með vinsældir sínar, og almennings álit á Íslandi. Látið bara Grænlendingana um drápið, þeir eru hvort eð er morðóðir sel - og bjarndýra veiðimenn, sem engu hafa að tapa. Birgitta Bardot og hinir vitleysingarnir hafa séð til þess.
19.3.2008 | 21:11
Tökum Hengilssvæðið frá.
Um síðustu helgi var ég á Hengilssvæðinu, og naut útivistar í einhverju besta veðri, sem komið hefur í vetur.
Sólin skein, hvergi var skýhnoðri á himni og allt þakið snjó, fullkomið!!
Allt um kring var fólk að njóta þess sem svæðið býður uppá, fjölbreytt landslag, flatlendi og hæðir skiptast á, með hraunbreiðum á milli. Víða má sjá gufu stíga til himins úr borholum O.R., og þarna var fólk jafnvel að baðast í heitum lindum, sem eru á víð og dreif um svæðið.
Þá erum við komin að því sem ég vil leggja til.
Ég legg til að allt Hengilssvæðið, norðan og austan við þjóðveg eitt, (það sem O.R. þarf ekki að nota) verði tekið frá fyrir fólk eins og það sem var þar um síðustu helgi, til að eyða frístundum.
Þarna voru fleiri jeppar en ég hef séð á einu svæði áður, vélsleðar og fjórhjól voru líka á svæðinu, og allir geisluðu af gleði, enda er þetta sennilega besta svæði fyrir mótorsport í nágrenni Reykjavíkur. Þarna er hægt að reyna ökutækin á flatlendi sem fjalllendi. Brekkur, hólar, hæðir sem og stórar flatir þar sem virkilega er hægt að spretta úr spori. Þarna eru einnig lækir til að auka á fjölbreytnina. Ég skemmti mér konunglega á breytta jeppanum mínum í brekkuklifri og spyrnum, jafnt á landi sem læk.
Ég tel alveg tilvalið að gera þetta að einu stóru leiksvæði fyrir mótorsport af því að:
Það er hvort eð er allt útsporað þarna, og ekki hægt að tala um "ósnortið land",
Nú þegar er svæðið notað sem "Torfærubraut" fyrir túrista, og þekkt sem "þúsundvatnaleið".
Að þetta er, og á eftir að verða enn meira iðnaðarsvæði, ekkert getur breytt þeirri staðreynd.
Að þetta er stutt frá helsta þéttbýli Íslands, og mikoll sparnaður er í því að þurfa ekki að fara langt til að leika sér.
Að engin auka "hávaðamengun" yrði þarna, hvæsið í borholunum sér fyrir því.
Að engin auka "Loftmengun" myndi finnast þarna, brennisteinsgufurnar sjá fyrir því.
Að þetta myndi hlífa öðrum svæðum, þar sem fólk er að stunda sitt sport "í leyni"
Að nú þegar eru vegir og slóðar útum allt, vegna framkvæmda O.R., og því verða nokkur aukaför ekki áberandi lýti.
Að vegna nálægðar við borgina gætu milljónir sparast í leit og björgun, en slys og óhöpp munu alltaf fylgja þessu sporti, rétt eins og T.d. útreiðum og skíðaiðkun.
Að annað útivistar sport hefur nú þegar fengið "sitt svæði" í nágrenni borgarinnar. Heiðmörk, Hólmsheiði, Kýrdalir og Nesjavellir, Þingvellir, Esjan, Grótta, Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli, og svo má ekki gleyma Reykjanes fólkvangi.
Með því að gera allt Hengilssvæðið að leiksvæði fyrir okkur, sem höfum gaman af því að reyna tækin okkar, og njóta útivistar og góðs félagsskapar um leið, mætti ætla að hægara væri að vernda önnur svæði, sem fólk freistast til að nota. Má nefna svæði eins og Breiðdal og Sveifluháls, þá eru Vigdísarvellir dæmigert "leynisvæði", útspólað og skemmt. Uppákomur eins og um síðustu helgi, þegar fólki var vísað burtu úr Sandvíkinni, ekki vegna landskemmda, heldur vegna þess að "það vantar viðurkennt" svæði fyrir Torfæruhjól, myndu heyra sögunni til.
Ég sé einnig fyrir mér, að O.R. gæti fengið að koma að þessu, (enda "þeirra" svæði) með því T.d. að leggja til áburð til að bera á verstu flögin til að minnka moldrokið yfir sumarið. Eða á einhvern annann hátt.
Auðvitað verða alltaf einhverjir "þverhausar" sem ekki geta sætt sig við svona skipulag, og verða alltaf á móti öllu sem gert er. Á svæðinu sá ég tvær manneskjur á gönguskíðum, og þegar ég stoppaði til að bjóða góðan dag fékk ég ræðuna um "helvítis villimennina, sem spóla og spæna allt út, og eyðileggja kyrrð fjallanna með vélargný og skrölti" Það var ekki einn einasti bíll, eða sleði vestan við þjóðveginn, og að auki hafði þetta ágæta fólk frjálsan aðgang að svæðunum, sem ég nefndi áður, en kaus að vera þarna innan um vélfákana, bara til að geta nöldrað aðeins.
Hvað finnst ykkur ? Mér finnst þetta vera náttúruvernd, og algjör snilld.
Börkur, sem finns gaman að spóla og spæna í drullupyttum og brekkum, en vantar gott svæði.
16.2.2008 | 10:30
Bláfjöll/Kerlingafjöll
Fyrir tuttugu árum hafði ég það starf að aka fólki á skíði í Bláfjöll, þá var nú gaman. Nægur snjór í amk. fimm mánuði á ári. En nú er öldin önnur. Vegna hlýnunar jarðar, hefur ekki verið hægt að halda opnu í Bláfjöllum nema örfáa daga/vikur á ári síðustu ár. Heyrst hefur að kaupa eigi snjóvélar til að auka snjómagn, en til að hægt sé að nota þær þarf frost, og þá komum við aftur að þessu með hlýnun jarðar. Jafnvel hafa einhver gáfumenni stungið uppá að byggja yfir brekkurnar, eins og í Saudi Arabíu, fyrir miljarða.
Til er lausn, sem ég held að myndi duga í einhverja áratugi, og myndi þar að auki hafa áhrif til framfara víðar en í skíðaíþróttinni.
Færum skíðamannvirkin í Kerlingafjöll !
Þar er nóg af snó, amk sex mánuði á ári. Til að slíkt sé fýsilegt þarf að byggja almennilegan veg yfir Kjöl, sú umræða hefur þegar átt sér stað, og ég tel það aðeins tímaspursmál hvenær hann verður byggður, þessi hugmynd er enn ein rök fyri byggingu hans. Staðarhaldarar í Kerlingafjöllum myndu svo gera færan veg frá Kjalvegi uppí fjöllin. Kerlingafjöll eru í aðeins 2ja og hálfs til 3ja tíma fjarlægð frá Reykjavík, á góðum vegi.
Í hálendismiðstöðinni í Kerlingafjöllum er allt sem eitt skíðasvæði þarf;
Jarðhiti er nægur til að hita hús og hótel sem byggð yrðu í framhaldinu, og jafnvel sundlaugar ef því væri að skifta.
Nú þegar er vatnsaflsvirkjun á svæðinu, svo að líklegast yrði það sjálfbært hvað varðar raforku.
Aðgangur að hálendinu er ótakmarkaður, þannig að jeppa og vélsleðaeigendur hefðu enga ástæðu til að leika sér í skíðabrekkunum, en það ku vera vandamál í Bláfjöllum..
Útsýni til allra átta er eitt hið fegursta í heiminum, og bara það eitt myndi laða að þúsundir ferðamanna ár hvert, innlenda sem erlenda.
Það sem myndi fylgja á eftir, þegar góður vegur yrði yfir Kjöl, yrði til mikilla hagsbóta fyrir alla:
Styttri vegalengd milli landshluta, Hveravellir gætu kannski orðið að alvöru náttúruvætti, með þjónustu árið um kring. Og allur aðgangur að Langjökli yrði betri, til hagsbóta fyrir ferðaþjónustu þar.
Í stað þess að flengjast til Evrópu í snjólitlar skíðabrekkur þar, gæti fólk farið í helgarferð í Kerlingarfjöll, eða Hveravelli, og í stað þess að Íslendingar færu til útlanda á skíði, flykktust útlendingar til Íslands á skíði, í fegurstu skíðaparadís Evrópu.
![]() |
Bláfjallarekstur verði boðinn út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)