6.11.2008 | 11:22
Er ekki nóg komið ?? Tekur óréttlætið engann enda ??
Er sviptinf ökuleyfis ekki refsing ??
Engar bætur eru greiddar fyri rangláta sviptingu Ökuleyfis. Hvað ef þetta hefði verið "einhver" ?, þá er ég ansi hræddur um að öðruvísi hefði verið tekið á málunum.
Er ekki kominn tími til að fara að hugsa sig aðeins um ?, og skifta út einhverju af þessu gjörspillta og siðblinda liði, sem heldur um stjórnartaumana ?
Saklaust fólk er pínt og kúgað, bótalaust. Óeirðarlögreglu er sigað á friðsamleg mótmæli, sbr. Rauðavatn. Barnaníðingar fá smánardóma. Nauðgurum og ofbeldismönnum er hleypt úr landi, áður en þeir taka afleiðingum gerða sinna. Ofbeldismönnum er hleypt úr fangelsi, vegna fjölskyldutengsla. "Hvítflibbar" fá að stela sparifé þjóðarinnar, í skjóli ráðamanna. Þeir rannsaka sjálfa sig.
Rannsóknarmenn eru látnir rannsaka meinta glæpi fjölskyldna sinna. Skuldir aðalsins eru þurrkaðar út, en almúginn er hundeltur og þarf að borga hvað sem það kostar, ellegar verða borinn út á guð og gaddinn.
Og hvenig bregðast yfirvöld við?, jú, þeir stofna sveitir "hvítstakka" til að berja á lýðnum, og útbúa brynvagna í baráttu sína við hungraðann og hræddan lýðin, Svei attann!!
Þetta er fyrirmyndarlandið Ísland, landið sem við elskum öll, en er í höndum ræningja og illmenna!
Og svo halda menn því fram, að hér þrífist engin spilling!!
![]() |
Sviptur ökurétti saklaus en fær ekki bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2008 | 08:24
Það er byrjað !
![]() |
Erilsöm nótt hjá lögreglunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 23:33
Förum heim !
Ég hitti vísan mann í morgun, og hann sagði mér frá hugmynd, sem hann hafði til lausnar þeim vandræðum sem við erum í. Lausnin var:
Afhendum Norðmönnum Drekasvæðið til olíu vinnslu, og tökum upp Norska Krónu, og fylgjum henni. Í staðinn borga Norðmenn okkur út, og aðstoða okkur við að endurheimta virðingu fjármálaheimsins. Norðmenn hafa allt til að bera til að gera eitthvað úr þessu svæði, ef það er eins mikil olía þar, og menn segja. Þeir kunna til verka, þeir eiga græjurnar, og þeir hafa fjármagn til að byrja strax, svo hagnaður fer fljótt að skila sér. Við myndum semja um að borga aðstoð þeirra tilbaka með leigunni á svæðinu, og sanngjörn skifti á ágóðanum.
Norðmenn eru frændur okkar og forfeður, og það er ekki eins og þetta væri í fyrsta skifti, sem við leituðum til þeirra í nauð. Íslendingar gengust Noregskonungi á hönd á þrettándu öld, og í hundrað þrjátíu og fimm ár vorum við norsk nýlenda, og ég held að það hafi verið þokkalegir tímar. Fyrir sakir pólítíkur, og græðgi Dana vorum við svo Dönsk nýlenda í rúmlega fimm hundruð ár, og ég er ekki jafn viss um að það hafi verið góðir tímar.
Er ekki kominn tími til að við, brotthlaupnir Norðmenn, viðurkennum upprunann, og snúum heim, eftir tvöhundruð ára fjarveru frá forfeðrum okkar, sem eru ábyggilega með opinn arminn, til að taka á móti "Týndu sonunum", þegar við höfum spilað rassinn úr buxunum.
Gerum eins og Egill sterki, sem hljóp grenjandi til mömmu, þegar Skallagrímur hýddi hann fyrir að læðast aftan að hrekkjusvíninu, og drepa það.
Förum heim, með tóma vasa, og sultardropa á nefinu, og byðjum kónginn að hjálpa okkur.
Var Snorri Sturluson ekki örugglega Norðmaður ??
![]() |
Hafna upptöku norskrar krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.10.2008 | 11:25
Keðjulausir um miðja nótt
![]() |
Flutningabílar fastir í skarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 21.10.2008 kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 01:15
Hvað marga flugelda....
Rukka manninn !!
![]() |
Björguðu sama manni tvisvar í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 10:04
Helvíti hart...
Ef maður þarf nú að gerast landflótta maður, rétt eins og á sjöunda áratugnum, þegar fjöldi fólks flúði jafnvel til Ástralíu, vegna þess að það sá enga framtíð á Íslandi.
En raunveruleikinn, sem blasir við, er að "óreiðumennirnir" og stjórnvöld eru búin að koma þjóðinni á vonarvöl, og gera hana að þrælum auðvaldsins.
Kannski er rétt að gera eins og Jónas Kristjánsson segir: flýja land, og líta ekki um öxl.
B-(
![]() |
Atvinnutækifæri erlendis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 20:02
Þarf raunverulegt afbrot til ?
Ef um raunverulega þrettán ára stúlku hefði verið að ræða, væri þetta refsivert athæfi. En vegna þess að ekki var um raunverulegt barn (sem betur fer) að ræða er ekkert refsivert við þetta.
Gjörðin var sú sama, þ.e. að heimsækja barn til að táldraga það. Ég sé engan mun á þessu, og finnst þessi dómur fáránlegur.
Ef barnaklám finnst á tölvu, þá er það glæpur, hvernig sem það komst þangað, og hvort sem eigandinn hefur notað það eða ekki. En ef sami maður fer í hús til að misnota barn, er það ekki glæpur.
Ég skil þetta ekki alveg.
![]() |
Sýknaðir af tilraun til kynferðisbrots |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.10.2008 | 10:38
Faraldur yfirvofandi ?
![]() |
Innbrot í höfuðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 10:32
Sagði ekki einhver að veturinn yrði harður og erfiður ?
![]() |
Hálkublettir og éljagangur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 10:26
Það tapa allir.
Ferðaþjónustan fer ekki varhluta af ástandinu, frekar en aðrir. Sumir hafa haldið að lágt gengi krónunnar þýddi að ferðamenn flykktust til landsins, en svo er ekki. Fréttir erlendra miðla af yfirvofandi skorti á nauðsunjum, svo sem eldsneyti og matvöru eru heldur letjandi, svo vægt sé ti orða tekið. Einnig hafa komið fram ásakanir um að Islendingar hagræði genginu sér í hag, og því sé ekki eins hagkvæmt að fara til Íslands, að ekki sé minnst á óróann, og hugsanlegr óeirðir. Á þessum tíma árs eru margir Breskir skólahópar Í landinu, að eyða vetrarfríinu. Við sem störfum í ferðaþjónustunni verðum vör við áhyggjur foreldra af ástandinu, og fáum oft spurningar um ástandið og hvort ferðamaðurinn sé öruggur. Enginn ferðamaður vill ferðast til lands, þar sem fjármálakerfið er hrunið, og skortur er yfirvofandi, að ekki sé talað um hættu á borgarastríði.
Bretar ættu að vera fjölmennastir ferðamanna á þessum árstíma, þeir eru einnig helstu fórnarlömb fjárglæframannanna, og því eðlilegt að þeim fækki. Ummæli Davíðs, og ráðaleysi stjórnarinnar, með þá Geir og Árna í fararbroddi, hafa gefið þá ýmind að hér sé land, sem er stjórnað af fjárglæpamönnum, og stjórnin hafi ekki neina getu, eða vilja til að breyta því.
Reyndar er ég farinn að hallst að því sjálfur. Því er krafan:
Burt með Davíð, burt með þessa handónýtu stjórn, drögum bankastjórnir og fjármálaráðgjafa ti ábyrgðar. Dæmum fjárglæpamennina, og gerum eigur þeirra (okkar) upptækar, ekki hefur okku almúganum verið hlíft, ef við höfum farið framúr með okkar fjármál. Síðan væri réttast að gera þessa menn útlæga úr viðskiftalífinu til frambúðar.
Reynum svo að byggja upp á nýtt á rústunum, sem þessir menn skildu eftir sig, og að sýna umheiminum að hér búa engir aumingjar, sem láta svona menn vaða yfir sig með glott á vör, kannski tekst okku að endurheimta það góða álit, sem þjóðin hafði áður.
![]() |
Enn fækkar farþegum í Keflavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)