Færsluflokkur: Bloggar

Helvíti hart

Þegar fólk er handtekið fyrir að nota Ísland sem samlíkingu. Það valdi skelfingu meðal þjóða. Hvert erum við eiginlega komin ?


mbl.is Handtekinn fyrir samlíkingu við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hissa ferðamenn

Ég var í þinginu með erlenda ferðamenn, um kl. 14:00. Eftir heimsóknina spurðu þeir hvar allir væru. Hvort ekki væri þorf á að nýta tímann og vera viðstaddur þingfundi. Í salnum voru 3 ráðherrar og u.þ.b. 5 þingmenn.
Útlendingunum (Ameríkanar) fannst þetta mjög skrýtið, og fannst ekkert skrýtið að sitthvað væri að, í stjórn landsins.
mbl.is Þingmenn mæta illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kertafleyting

Svo legg ég til, að ef Heilög Jóhanna gefur sig ekki, að næst verði kertafleyting á tjörninni, á eftir bænastund í Fríkirkjunni.
mbl.is Blysför til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslands merki, og Þingvellir.

Eitt hefur lengi truflað mig, og nú þegar þjóðerniskennd og stolt er mál dagsins, datt mér í hug að fá álit ykkar á nokkrum hlutum.

Hvað finnst fólki um, að í kirkjunni á Bessastöðum skuli skjaldarmerki Íslands vera í röngum litum, og ekki samkvæmt lýsingu á því ?... Og þar af leiðandi ekki rétt. Á sjálfu höfðingjasetrinu.

Ég geri ráð fyrir því, að litirnir í fána Íslands séu löglegir, en hvað finnst fólki um, að litirnir eru ekki þeir sömu og upphaflega, og eru ekki í samræmi við lýsingu á fánanum frá höfundi, og eins og honum er lýst í fánalögum?.

Einnig hefur það truflað mig, að þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, skuli ekki vera með á hreinu vað gjárnar heita (þessar með peningunum). Ég ólst upp við að þær hétu Flosagjá (sú vestari), og Nikulásargjá (Sú austari, þar sem brúin er). En þjóðgarðsvörður lét hafa eftir sér í blaðaviðtali að sú austari héti Flosagjá (peningagjá). Hvað heita gjárnar ?.

Ofarlega í Almannagjá, er "C18" vel og vandlega rist í vestari vegg gjáarinnar, Hvað þýðir þetta ?

Gaman væri að fá hugmyndir fólks um þetta, og fleira í þessum dúr.

Börkur, (sem getur nú verið svolítill nörd í sér)


Helvítis óhræsið !!

Helvítis óhræsið !!!
mbl.is Farrah Fawcett kvaddi vini sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er 10 - 11 löggan farin að vinna í Seattle ?

Það er náttúrulega stórhættulegt öryggi lögreglumannanna, að 15 ára stúlkan skuli sparka af sér strigaskónum !!
Og slíku ofbeldi skal svara á aðeins einn hátt !!
Berja tíkina, handjárna og draga á hárinu!! Ekta svona 10 - 11!!
mbl.is Lögreglumenn réðust á 15 ára stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg í Sjálfstæðisflokkinn ??

Þetta er náttúrulega vatn á myllu sjálfstæðismanna, því framboð ISG. mun eyðileggja það góða skrið, sem Samfylkingin er á. Hún hlustar ekki á þjóðina, sem valdi Jóhönnu til forystu í flokknum. Og hvað er þetta með að stjórnmálamenn geta alls ekki hætt ?, jafnvel þótt þeir séu alvarlega veikir!!!
Það er ljótt að segja þetta, en: Var ekki höfuðmein að hrjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir ?? Ég held að hún hafi skaddast meira en hún gerir sér grein fyrir.
mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maturinn ?

Skyldi eitthvað vera í matnum þarna á Selfossi ? Eða vatninu ?? Þetta er ekki gott, eitthvað þarf að gera, áður en allt springur í loft upp.
mbl.is Ráðist með grjóti á 16 ára pilt í FSu á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðgæðið í svaðið

Það er náttúrulega ekki líðandi að "Klámdrottningar" eins og Wong sitji á þingi í siðmentuðu landi eins og Malasíu. Þar sem tekist hefur að stemma stigu við ýmsum ófögnuði eins og eitulyfja neyslu og skyrpingum. Og svo segist hún ekki skammast sín fyrir kynferði sitt !, einhlyp 37 ára konan!! Hvílík siðblinda!!!
Hvert stefnir heimurinn ef það er látið viðgangast að stjórnvöld sofi nakin!!?? Guð hjálpi okkur öllum!!

mbl.is Býðst til að segja af sér vegna nektarmynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmdarverk ?

Ég hef nú alltaf verið fylgjandi hvalveiðum, og ekki legið á þeirri skoðun að við höfum allann rétt á að veiða hval, ef við teljum að það sé okkur til hagsbóta.
En ég verð að segja, að maður veltir því fyrir sér, hvaða hvatir lyggja að baki þessarar ákvörðunnar, sem er tekin eftir að búið er að byðjast lausnar fyrir fyrri stjórn. Hvað sem menn halda, þá trúi ég því ekki eina einustu sekúndu, að þetta sé gert með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.
Ég held, að þessi ákvörðun nú, geti skaðað ýmind okkar, sem við verðum að reyna að bæta, þótt það þýði að við verðum að gefa eitthvað eftir af réttindum okkar.
Þetta hefði átt að vera verkefni nýrrar stjórnar, þetta er of viðkvæmt mál, í samskiftum við aðrar þjóðir, til að eiga við ákkúrat núna.
Eitthvað býr að baki.


mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband