Færsluflokkur: Bloggar

Hvað með skuldirnar ??

Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvaða meðferð hann fær, í sambandi við sínar skuldir, sem nema tugmilljónum. Var afsögnin kannski vegna gjaldþrots ??
mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtin vika

DSCF2999_2Mikið er búið að gerast í vikunni, sumt gott, annað miður.Ég hef aldrei verið Framsóknarmaður, eða hrifin af Framsóknarflokknum. Hef reyndar haft frekar skömm á honum, en hitt. En nú ber svo við, að mér finnst ég verða að hrósa Framsóknarmönnum. Hrós fyrir að yngja upp, fyrir að segja gömlu forystunni upp störfum, og setja málin í hendur á nýju fólki. Vonandi verða nýjar og betri áherslur hjá hinum "Nýja Framsóknarflokki". Og ekki var lengi að bíða eftir að hinir "nýju" létu til sín taka. Gáfu út yfirlýsingu um að styðja minnihluta stjórn, og verja hana falli, fram að kosningum. Það má deila um hversu snjallt þetta er, en eitt er víst, að þeir vilja breytingar, og eru tilbúnir til að láta verkin tala, núna !.Ég fór niður í bæ, á miðvikudagsnóttina, að fylgjast með. Flest alvöru fólk var að yfirgefa svæðið. Eftir voru "góðkunningjar" löggunnar. Og eins og sjónvarpið sýndi á fimmtudagskvöldið, voru sumir dálítið skrautlegir.  Þessi reyndi að stilla til friðar í byrjun, og bað fólk að sýna stillingu, og hlífa lögreglumönnunum.

 

 

 

   Seinna, og kannski nokkrum bjórum seinna, var hann farinn að ögra loggunni, og þrátt fyrir að þeir reyndu að ýta honum frá mjúklega, þá hætti hann ekki.  Að lokum endaði þetta með því að löggan var farinn að búa sig undir að gera áhlaup á lýðinn.  Þá kom til kasta fólks, sem hvatti gaurinn til að "slaka á" og hætta að espa lögguna, því þetta væru "friðsöm mótmæli".  Þegar gaurinn lét sér ekki segjast, missti einn "mótmælandinn" þolinmæðina, og æddi að gaunum, og öskraði: "hættu þessu, helvítis fíflið þitt, þetta eru friðsamleg mótmæli", og skallaði hann í andlitið.  Eins og við var að búast, var þetta bara eins og að skvetta olíu á eld, og áttu nærstaddir fullt í fangi með að koma í veg fyri slagsmál þeirra "friðsömu".  

DSCF2998

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mér fannst þetta dálítið fyndið, en um leið sorglegt, að sjá hvernig áfengi getur farið með fólk.  Það seinasta, sem ég sá af þessum gæa, var þegar löggan dró hann æpandi og skrækjandi á brott, eins og sást í sjónvarpinu.   Sorglegt var hins vegar að sjá útganginn á Alþingishúsinu, og umhverfinu, en ábyrgðin á þessu öllu er hjá Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu, fyrir þaulsetni þeirra, og blindu á vilja og kröfur fólksins.  DSCF3001 
 
  En nú eru þau loksins búin að átta sig, og ákveða að samstarfið gengur ekki lengur.  Þá er bara að halda áfram, og losa okkur við fleiri meinsemdir, eins og Davíð Oddson, og sækja síðan þetta fólk, sem kom þjóðinni á hausinn.  Og nota öll hugsanleg meðul, (óþarfi að vanda þau) til að koma þessu fólki í bönd, og endurheimta eitthvað af ránsfenginum aftur.
   Ég var á göngu í gær (föstudag) um Austurvöll.  Hitti fyrir nokkra hressa Breta, sem báðu fyrir hlýjar kveðjur til (næstum því) allra Íslendinga, með þökk fyrir peysurnar.  Þeir sendu líka Davíð Oddsyni og ríkisstjórninni kveðjur, eins og sést á myndinni, sem Benedikt Sigurðsson tók af hópnum.   DSCF3009  Á skiltinu stendur:  "Dabbi drullusokkur"
 
   Á morgun ætla ég niðrá Austurvöll, baráttan fyrir breytingum og framtíð fyrir fólkið er langt í frá búin, og ég vona að þrátt fyrir ógætileg orð, sem hafa verið mistúlkuð af spillingaröflunum, og notuð til að reyna að reka fleyg í fylkingu fólksins, þá veit ég að við látum engan bilbug á okkur finna.
 DSCF3008_2
      

"Hvað eigum við að gera fyrir þá, sem skulda ekkert"

Þetta sagði Geir Haarde, þegar hann var spurður hvort honum fyndist koma til greina að afskrifa hluta skulda þeirra, sem væru í Kröggum.

Mitt svar er Ekkert !, þeir þurfa ekki aðstoð, og geta hrósað happi.

Það mætti eins spyrja:

Hvað eigum við að gera fyrir þá sem fá nog að borða ?, ef við sendum mat til hungraðrar Afríku ?.

Hvað eigum við að gera fyrir þá Breta sem er ekki kalt ?, ef við sendum peysur til Englands ?.

Hvað eigum við að gera fyrir þá sem eru ekki sárir ?, ef við styrkjum rauða krossinn ?.

Hvað eigum við að gera fyrir þá sem eru ekki bændur ?, ef við styrkjum landbúnaðinn ?.
Og svona mætti lengi spyrja.

Ég spyr:

Hvað ætlið þið að gera, fyrir þá sem eru að missa allt sitt, vegna skulda ?, Fyrst þið gerðuð allt fyrir þá sem skuldsettu þjóðina ?


Er það langt ?

Kannski, ég veit ekki.

Hvar er hún þessi "Grindarvík" ?? 


mbl.is Langt þeir sækja sjóinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við skulum sjá til.

Það verður fróðlegt að sjá hvort Hamas glæpaliðar geta haldið aftur af sér.

mbl.is Ísraelar lýsa yfir vopnahléi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlilega

Þarf það að koma einhverjum á óvart, að lyf, sem notuð eru til að auka bruna geti haft aukaverkanir, ef neytt er í óhófi ??
mbl.is Hydroxycut keyrir kerfið upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegt

DSCF2986Var niðurfrá, vonandi varð ekki manntjón.

Strætisvagn var notaður sem skýli fyrir íbúana, 

                                                                                

 

 

 

 

 

DSCF2975Svona var aðkoman,

DSCF2980svo skíðlogaði uppúr þakinu.

 

 

 

 

 

DSCF2982

 

 


 loksins virtust þeir ná tökum á eldinum.  Ég held að það sé nokkuð ljóst, að ekki verði búið í þessu húsi meira.  Alveg ferlegt að verða fyrir svona.  Fólkið, sem þarna bjó, á alla mína samúð.

 

 

 

 




mbl.is Stórbruni á Klapparstíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er náttúrulega alveg rosalegt.

Og svo sitja allir keikir, og sukkið heldur áfram, í skjóli sömu aumingjanna og áður.
Hvar eru Landráða lögin ?
Hví gengur þetta fólk laust ?
Þetta er orðið óþolandi.
mbl.is Botnlausar skuldir íslensku þjóðarinnar vegna bankahruns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílíkir aumingjar !

Ari Edwald heldur áfram að skæla, og kvarta undan mótmælendum. Nú beitir hann starfsfólki sínu fyrir sig. Hvílík "kelling", og ef starfsmennirnir eru svoddan aumingjar, að þola ekki smá stympingar, hver andskotann voru þeir þá að gera í slag? www.dv.is:frettir:2009:1:14:sjonvarpsfolk-missir-svefn-vegna-motmaela:.webloc

Sammála !

Ég hef oft furðað mig á því, að sum "lesblind" börn virðast ekki eiga í nokkrum vandræðum með það lesefni, sem vekur sérstakan áhuga þeirra.
Er þetta ekki bara "lesleti" ?
mbl.is Segir lesblindu afsökun menntakerfisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband