Auðvitað var hann fullur !!

Hvurslags bjáni er þessi Sjurtur (maður þarf helst að vera fullur, til að segja nafnið), skilur hann það ekki, að manngreyið hafi fengið sér í glas, þegar hann afhenti milljarða til Íslands (glatað fé ?). Og svo þurfti hann að þola svikakvendið Sollu. Hafi þessi maður (Jóhannes), einhvern snefil af siðgæði og réttlætiskennd, er það mjög skiljanlegt að hann hafi þurft að drekka sig fullann til að umbera veislu hjá Svika - Sollu.
Sjurtur, blessaður slakaðu á, og fáðu þér í glas, og jónu líka, þú þarft það.

mbl.is Sakaður um að hafa verið ölvaður í boði hjá Ingibjörgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha, Norð -austur ??

Hvar er 3,2 sjómílur Norð - austur af Skarðsfjöruvita ??
mbl.is Skipið komið í tog
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reikningur

Reikningur er kannski ekki mín sterkasta hlið, en er 12 ekki þriðjungi meira en 9 ?
mbl.is Innheimti fjórðungi of mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi byggir

Voðalega er þetta óskýr frétt.
Er þetta ekki sveitastjórnar gaurinn með barns heilann, þessi sem keypti flugmódel, (Vvrrrúúúúúmm Ratatatatata, Rauði baróninn !!), og lyftara (Brrrrr, lyfta !, slaka !) fyrir fé Grímseyjarhrepps ?
Eða var þetta bankamaður á Svalbarðseyri, sem stal ævisparnaði gamla fólksins á staðnum ?
mbl.is Ákærður fyrir brot í opinberu starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myntkörfulán ?

Ha, kviknaði í ?, hvíldi mikið á því ?
mbl.is Eldsvoði á Skúmsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað vantar hér

Ekki er öll sagan sögð. Hversvegna vill lögan upplýsingar um öll símtöl frá 16:00 - 22;00 ?, í sex tíma ?

Vita þeir ekki hvað klukkan var, þegar þeir mættu honum ?

Hvað er í gangi hér ? 


mbl.is Fá ekki upplýsingar um GSM-síma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið eru menn vitlausir

Þetta er nú með því vitlausasta sem ég hef séð, og hef ég nú séð margt um mína daga !Menn eru farnir að rífast um hver er mesti Fábjáni framsóknarmaðurinn.  

Eru menn ekki í lagi ?


mbl.is „Bjarni móðgar framsóknarmenn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enga linkind

Sé þetta rétt, hlýtur krafan að vera, að hann verði lögsóttur, og lokaður inni.
Að mínu mati er þessi maður stórhættulegur, siðblindur glæpon af verstu sort.
Þessir menn virðast telja sig yfir öll lög og reglur hafna, og vaða hér yfir allt og alla á skítugum skónum,
og JÁJ. hefur sýnt þjóðinni hvert er hans innra eðli upp á síðkastið, með alveg ótrúlegri ósvífni.
Það er kominn tími til að lækka aðeis rostann í honum og hans líkum.
Hræddur er ég um að ef einhver "nóbodí" út í bæ, hagaði sér eins og þessir "óreiðumenn" gera, væri búið að stoðva það.
Það verður að stöðva þetta fólk, og jafnvel að setja það bak við lás og slá, svo hægt sé að rannsaka umsvif svikanna.

Það má heldur ekki láta það viðgangast, að ein einasta launafjölskylda í landinu missi eigur sínar fyrr en búið er að gera eigur "Óreiðumannanna" upptækar.

Krafan er: Allt upp á borðið, engum skal hlíft.


mbl.is Sýnist Jón Ásgeir hafa framið nýtt lagabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiðin stigmagnast

Það verður að vekja ráðamenn til vitundar, og koma þeim úr afneituninni.
"Mála bæinn rauðan", sprengingar við Alþingi, þeir verða að fara að skilja hvernig "Skrílnum" líður.
mbl.is Máluðu Valhöll rauða í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju gerist ekkert ?

Því ganga forsprakkarnir, þeir sem bjuggu þetta ástand til, lausir ?
Því er ekki búið að handtaka þá ?
Því er ekki búið að haldleggja ALLAR eigur þeirra ?
Hvers vegna er ekki komin einhver ákveðin stefna frá yfirvöldum ?
Því axla menn ekki ábyrgð ?
Verður endirinn sá, að hér verður þjóðar gjaldþrot ?
Verður ríkisstjórnin látin sitja áfram ?
Verðum við áfram með sömu yfirmenn í Seðlabankanum ?
Verður öll þjóðin, nema þeir ábyrgu dregin til ábyrgðar ?
Ert þú tilbúin að borga fyrir græðgi/þjófnað fárra manna ?
Tapaðir þú ævisparnaðinum?
Munt þú missa vinnuna ?
Munt þú missa húsið ?
Munt þú missa bílinn ?
Mun fjölskylda þín standa af sér erfiðleikana ?
Finnst þér þetta í lagi ??

Látum í okkur heyra !!

Hættum ekki fyrr en "Óreiðumennirnir" og þeir sem með aðgerðarleysi héldu yfir þeim hlífisskildi eru farnir, og helst komnir á bak við lás og slá !!

Jón Ásgeir kom með flugi frá London í gærkvöldi, það beið hans dýrasta týpa af Bens, með einkabílstjóra. Skyldi hann hafa verið með reiðufé til að kaupa fleiri fyrirtæki ?
Því er ekki búið að stöðva þetta fólk ?
Hversvegna getur hann ferðast frjáls eins og fuglinn ?
Ekki getur þorri almennings það, úr skuldafangelsinu, sem þeir settu þjóðina í.


mbl.is Vaxandi reiði í garð Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband