Veðravíti á Þjóðveg 1 !!

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar um ,,veðravítið" Víkurskarð á Vísis bloggi sínu, og hve hún myndi glöð borga ,,smá skatt" fyrir að fá göng undir Vaðlaheiði, frekar en að eyða nótt af páskafríinu föst í bílnum:

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar:Ég þekki hjón sem gistu eitt sinn heila nótt í bílnum sínum uppi í Víkurskarði með þremur ungum börnum. Fjölskyldan ætlaði sér yfir í næstu sveit yfir páskahelgina og lagði af stað í góðu veðri frá Akureyri. Það var líka gott veður í sveitinni þangað sem ferðinni var heitið, en í skarðinu lentu þau í blindbyl og sáu hvorki hvað sneri upp né hvað sneri niður. Björgunarsveit á snjóbíl bjargaði þeim í dagrenningu ásamt fjölda fólks sem einnig hafði eytt nóttinni í skarðinu. Fjölskyldunni varð ekki meint af, enda vel búin og nestuð.Víkurskarð er veðravíti á þjóðvegi 1. Þar uppi getur verið kolvitlaus bylur en logn og blíða sitthvoru megin við. Þegar ég sótti skóla á Akureyri í eina tíð átti ég leið um skarðið ófáar helgarnar. Foreldrar mínir hringdu þá jafnan um nærsveitir að leita eftir einhverjum sem ég gæti verið í samfloti við yfir skarðið. Það var ekki ráðlegt að leggja á það einn.Ég veit ekkert hvað kostar að ryðja þetta skarð á veturna. Ég veit heldur ekkert hversu margar ferðir á vetri eru farnar þangað upp eftir að bjarga vegfarendum sem festast þar í snjóbyl, né hvað þær kosta eða hver borgar. Ég veit ekki hversu margir bílar fara þar út af snarbrattri hlíðinni á ári vegna hálku og ég hef ekki hugmynd um hversu margir metrar af vegriðum hafa verið settir þar upp, eftir að einhver bíllinn fór einmitt út af. Ég veit ekki hvað hallinn á veginum er margar gráður sitt hvoru megin niður af skarðinu né um hversu mörg prósent veggrip hjólbarða minnkar í rigningu, ísingu, snjó eða roki.Ég veit heldur ekki nákvæmlega hversu margir bensínlítrar né hversu margar krónur sparast við að aka beinustu leið gegnum göng í Vaðlaheiði á jafnsléttu. Ég hef heldur ekki reiknað nákvæmlega hversu margar mínútur ég spara á ferð minni við það að aka í gegnum göngin. Ég veit ekkert hversu margir eru með eða á móti því að Vaðlaheiðargöng verði grafin yfirleitt.Ég veit þó að sjálf mun ég fegin keyra þessi göng, verði þau að veruleika, og borga fyrir það toll. Ég hugsa að sá tollur verði alltaf lægri en hinn, það er sá tollur að þurfa að eyða nótt af páskafríinu í blindbyl uppi í skarði.

Eigum við að velta fyrir okkur öðrum ,,veðravítum" á Hringveginum ?:

Sandskeið, Hellisheiði, við Ingólfsfjall, Holtin, undir Eyjafjöllum, Skógasandur, Víkin, Mýrdalssandur, við Lómagnúp, við Hof í Öræfum, Fagurhólsmýri, við Kvísker, Lón, Álftafjörður, Hvalsnesskriður, Möðrudalsöræfi, Öxnadalsheiði, Vatnsskarð, Holtavörðuheiði, Hafnarfjall og Kjalarnes, bara til að nefna það, sem mér kom fyrst í hug.

Það væri gott að fá göng undir öll þessi svæði, þá þyrfti maður ekki að athuga veðurspár, eða sýna eðlilega aðgæslu áður en maður legði í langferð !   Nú, eða bara búa sig og bílinn miðað við aðstæður og árstíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband