Smekklegt

Að bera kjötmjöl í kögglum á gras laðar að hræfuglana. Og sérstaklega smekklegt að hafa hræfuglana í stórum hópum í kirkjugarðinum.

mbl.is Kroppa kjötmjöl í kirkjugarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt mun Harpa aldrei veða sjálfbær.

Teljarar í dyrunum sýna ekki hvað margir komu til að skoða, og hvað margir voru borgandi viðskiftavinir.
mbl.is Milljón gestir senn í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hittir naglann á höfuðið

Þarna er þessu rétt lýst. Hvað ætli það séu mörg ,,náttúruundur" á íslandi, sem eru ekki aðgengileg, eða aðgangur ekki leyfður að, vegna þess að þau eru á einkalandi ? Eða þá, að gjald er tekið fyrir að leyfa ferðafólki að berja það augum. Þá má ekki gleyma að fjölmargir sögustaðir eru á einkalandi, þar sem landeigandinn bannar alla umferð, eða nema gegn gjaldi.
Það þarf að koma á einhverskonar reglum um þetta, sem allir hagsmunaaðilar geta sætt sig við, og það sem fyrst.
mbl.is Magnús Oddsson: Ferðaþjónusta og íslensk þjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi hefur hún dug og þor

Til að skila Íslendingum raunverulegu trúfrelsi, með því að leggja niður þjóðkirkjuna.

mbl.is Agnes næsti biskup Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá þeim !

Fólk og yfirvöld verða að fara að átta sig á, að Kerið er í einkaeign, og alls ekki sjálfsagt að vaða þar um eins og heima hjá sér.
Það gildir öðru um Þingvöll, Geysir, og Gullfoss, sem eru öll amk. að hluta til í almannaeigu.

mbl.is Höfðu ekki áhuga á heimsókn Wen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og engin bílastæði.

Það er augljóst að þetta hótel á eftir að auka á bílastæðavandann í miðbænum. Og fleiri hótel eru væntanleg, það stendur til, að breyta Iðnaðarbankahúsinu (Íslandsbanki) í Lækjargötu í hótel, með ónógum bílastæðum. Þá er ekki hugsað fyrir aðkomu stórra hópferðabíla að þessu hóteli, frekar en fleirum í miðbæ Reykjavíkur.
mbl.is 108 herbergja glæsihótel í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takmarka aðgang !

Þetta svæði er sennilegasta hættulegasta ferðamannasvæði landsins. Þarna verða fjölmörg slys ár hvert, teljast líklega í tugum. Flest þessi slys verða þegar fólk, mest útlendingar, eru án staðkunnugs leiðsögumanns.
Mér finns alveg athugandi að takmarka aðgang að svæðinu, þar sem viðvörunar skilti hafa greinilega ekki skilað árangri í að fá fólk til að passa sig. Reyndar er þetta vegna vanþekkingar fólks á aðstæðum.
Veit ekki aæveg hvernig, en eitthvað þarf að gera til að koma í veg fyrir þessi síendurteknu slys á svæðinu, við þurfum ekki þessa auglýsingu fyrir ferðamennsku á Íslandi.
B-)
mbl.is Datt í hver og brenndist á fæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílikir vitleysingar !

Hér ákveða menn greinilega að fara í einhvern orðaleik, frekar en vera málefnalegir !!
Það stendur ekki til, né hefur það staðið til, að svipta menn veiðikvóta !!
Það er verið að tala um að úthluta ekki sama eða minni kvóta næst eða einhverntíma, þegar ný lög hafa verið sett. Veiðikvóta er úthlutað árlega, og undanfarin ár hefur hann oft verið minni en árið á undan, og það alveg bótalaust !
Það er óumdeilt að einhver hugsanlegur veiðikvóti (veiðiréttindi) í framtíðinni er ekki eign neins. Ef einhver er svo vitlaus, að vilja taka veð í hugsanlegum veiðiréttindum skipaeigenda, þá verður sá hinn sami að eiga það við sjálfan sig.
Gísli Tryggva orðaði þetta kannski vitlaust, hann hefði átt að segja, að ef menn fengju ekki úthlutaðann kvóta í framtíðinni, þa yrði það bótalaust. Enda hvergi í lögum að svo og svo miklum kvóta skuli úthlutað til tilgreindra skipaegenda í framtíðinni. Hinsvegar er tiltekið að fiskurinn í sjónum sé sameign allra landsmanna, og að veiðirétti skuli úthlutað árlega með hagsmuni þjóðarinnar í huga !
Krafan hlýtur að vera að fá allann fisk í land og vinna hér, og flytja síðan út, sem fullunna vöru. Okkur vantar fleiri störf, ekki síst á landsbyggðinni, þar sem frystihús standa tóm og fólkið þyggur bætur frá ríkinu.
Það vita allir, að fiskveiðar eru ekki að skila þjóðinni því sem þær ættu.
Of fjárfesting í fiskveiðiflotanum er stórt vandamál hér, og allar krónur, sem annars gætu nýst hér á landi í formi gróða, fara í að borga lán af marg yfirveðsettum fiskveiðiflota landsins, þannig að aðeins lítið brot verður eftir hér heima.
Algjör uppstoppun er nauðsyleg, og viðurkenning fólks á að útgerðarmenn ,,eiga" ekki veiðiréttinn til eilígðar, heldur fá hann úthlutaðann árlega ti árs í senn, og eru skyldugir til að fara vel með hann, þjóðinni allri til hagsbótar, en ekki til að mata eigin krók.
mbl.is „Aldrei heyrt annað eins rugl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of margir leigubílar ?

Það er athyglisvert að bera saman fjölda á bakvið hvert leyfi.
Á höfuðborgarsvæðinu eru Uþb. 300 manns á hvern leigubíl, en á Akureyri eru Uþb. 800 manns á bak við hvert leyfi.
Getur verið að það séu einfaldlega alltof mörg leyfi í borginni ?
mbl.is 13 leyfi til leigubílaaksturs laus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar fréttaflutning

Þetta er nú svolítið okkur að kenna.
Það mætti auka fréttaflutning af óförum útlendinga hér á landi. Alltof margir halda að það að ferðast um hálendi og jökla sé ,,walk in the park".
Mbl er með ,,news in english", þar er afar sjaldan fréttir af þessum málum, það virðist ekki mega styggja ferðamanninn, við skulum fá hann hingað, hvað sem það kostar !
T.d. vantar alveg fréttir af bílveltum ferðamanna ó vondum vegum okkar, eða þegar það þarf að sækja fólk í vanbúnum bílum inná fjöll.
Ég held að ferðamenn taki jafnvel sénsinn, af því að þeir vita að þeir geta treyst á að verða sóttir, ef þeir lenda í vandræðum, þessir gerðu það.
Stöðugar fréttir af færð og óförum fólks myndu fæla ævintýrafólkið frá, sérstaklega ef fjallað væri um kostnað, sem vanbúið ferðafólk þyrfti að borga. Að sjálfsögðu þyrftu þær að vera á ensku, í fjölmiðlum fyrir ferðamenn. Iceland review T.d.
Þessar fréttir gætu líka gagnast í atvinnuleysinu, sem er hér er.
Þannig mætti ímynda sér, að ef meira væri hvatt til að nota kunnáttu Íslenskra fjallamanna myndi þessum atvikum fækka til muna, og skapa störf um leið. T.d. held ég að Íslenskir fjallamenn viti alveg hvernig tjöld þurfa til að ferðast um Vatnajökul að vetri.

mbl.is Fleiri útköll vegna ferðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband