Ísland í dag (Ástarsaga)

Ég ætla að segja sögu tveggja góðra vina minna, og barnanna þeirra: Þau báðu mig að segja ekki hvað þau heita, vegna fjölskyldnanna, svo við skulum kalla þau Jón og Gunnu. Þau hittust fyrir u.þ.b. 10 árum, þá bæði í menntaskóla, og urðu svona "skólapar". Þegar Gunna varð stúdent, hafði Jón flosnað upp, enda alltaf verið dálítið villtur. Hann byrjaði að læra til trésmíði, en ólgan í blóðinu og töffaraskapurinn gerðu honum erfitt fyrir. Hann fór til sjós, á góðan togara, og þénaði vel. Gunna fór að vinna hjá Landsbankanum, og var vel liðin, enda reglusöm og iðin. Fyrir sex árum (þegar ég kynntist þeim), varð Gunna ólétt, og þau ákváðu að hefja búskap saman og gifta sig. Hann hætti á sjónum, og fór að vinna í landi, og hún hélt áfram hjá bankanum. Þau keyptu litla blokkaríbúð í Breiðholtinu, fengu lán hjá Íbúðarlánasjóði og voru hamingjusöm. Tveimur árum seinna varð Gunna ólétt af seinna barni þeirra, fallegum dreng, og nú fannst þeim að þau hlytu að geta tekið þátt í góðærinu, og stækkað við sig. Enda bæði í góðu starfi, hann var að vinna við virkjanaframkvæmdir fyrir austan, og þénaði vel, og hún í bankanum. Þau keyptu góða íbúð í litlu fjölbýli í Grafarholti, og í þetta sinn tóku þau myntkörfulán, "enda svo miklu hagstæðara" að mati allra ráðgjafa, sem þau töluðu við.  Gunnu var boðið "hagstætt lán" til að kaupa hlutabréf, sem hún að sjálfsögðu þáði.  Lánið lék við þau, og framtíðin var björt.  Yfirvöld og verkalýðsfélög myndu sjá til þess að stöðugleiki yrði tryggður. 

      Þau buðu mér í heimsókn um jólin 2006, og ég gladdist með þeim yfir fallega heimilinu, fallegu börnunum, og björtu framtíðinni, sem blasti við.  Mér varð hugsað til þeirra, þegar Forseti og Forsætisráðherra fluttu áramótaræður sínar, og lofuðu glæstum framtíðarhorfum.

     Fyrir ári síðan hætti Jón á fjöllum, og fékk vinnu hjá stóru bygginga fyrirtæki, sem vélamaður og bílstjóri.  "Gott að vera meira heima" sagði hann.  Þau keyptu nýja bíla á síðasta ári, enda "hagstæð fjármögnun" í boði, "Við látum draumana rætast", sagði fjármögnunarfyrirtækið, myntkörfulán.

     Óveðursskýin hrönnuðust upp, gengissig, verðbólga úr böndunum,  vextir hækkuðu, og eignirnar rýrnuðu.  En greiningardeildir bankanna, og talsmenn stjórnvalda, róuðu fólk, og sögðu "aðeins tímabundin órói", "þetta lagast í næsta mánuði", "eða þarnæsta".  Og Jón og Gunna treystu þessu fólki, en höfðu þó efasemdir.  En glýjan frá nýbyggingunum og fínu bílunum, sem fylltu göturnar, byrgðu þeim sún, sem og flestum öðrum.  Gunna reyndi að selja bréfin, til að minnka við sig skuldirnar, en þá kom grimmur raunveruleikinn í ljós.  

     "Hagstæða" lánið sem Gunna tók, var háð því að þau seldu ekki bréfin fyrr en eftir að minnsta kosti 2 ár, og yrði ekki á gjalddaga fyrr en þá (næsta sumar).  

Og svo kom Hrunið.  Þrátt fyrir að deildarstjórinn hennar Gunnu hafði sagt að "við erum ekki að fara á hausinn, veistu ekki hver á Landsbankann"  Hahaha.  Bankanum var lokað, og viku seinna fékk Gunna uppsögnina.  Hún hefur þriggja mánaða uppsagnarfrest, og launin eru minna en helmingur þess sem hún hafði áður.  Jón missti líka vinnuna, því að byggingafyrirtækið stendur afar illa, og óvíst hvort það lifir af hremmingarnar, honum voru borguð mánaðar laun, og tilkynnt að hann þyrfti ekki að vinna uppsagnartímann.   Bílarnir eru yfirveðsettir, svo það er ekki möguleiki að selja þá án þess að enda með skuld.  Og það versta af öllu:  Þau rúmlega 20% af verðmæti íbúðarinnar, sem þau áttu í henni, eru uppurin, töpuð.  Á sama tíma er fasteignamarkaðurinn frosinn, og íbúðaverð hrapar hraðar en nokkru sinni fyrr.  En skuldirnar aukast og aukast.

Allt í einu er þessi fallega fjölskylda ekki svo falleg lengur.  Það er drungalegt og dimmt yfir, glampinn og gleðin sem ríkti á þessu heimili fyrir tveimur árum, hefur breyst í vonleysi, vonbrigði, reiði og óhamingju.  Fyrir þessu glæsilega fólki blasa erfiðleikar, sem þau hafa aldrei kynnst fyrr, erfiðleikar sem þeim var lofað að þau þyrftu aldrei að kynnast.  

     Ég heimsótti þessi ungu hjón fyrir nokkrum dögum, og var brugðið að sjá breytinguna, úr andlitum þeirra skein vonleysi og biturð, ekki síst útí sjálf sig, fyrir að hafa látið glepjast af fagurgala glæpamannanna, sem plötuðu landsmenn alla og yfirvöld, og spiluðu með auð þjóðarinnar, en tryggðu sér um leið vænar fúlgur, snekkjur og einkaþotur.

  Framtíð Jóns og Gunnu er ekki björt.  Gjaldþrot og atvinnuleysi er framundan, og svo kemur að gjalddaga á stóra láninu, sem átti að verða þeirra sneið af góðærinu.  Þau ætla að halda góð jól, fyrir börnin, en Gunna sagðist ekki finna jólafriðinn í brjósti sér.  Hún setur upp grímu á hverjum degi, fyrir börnin, en ég sá breytingu á börnunum, þau skynja að eitthvað er ekki eins og það á að vera.  Annar bíllinn er númerslaus inni í skúr, til að spara tryggingagjöld.  Hann er til sölu, þeir eru það báðir, en hver vill kaupa bíla, sem eru yfirveðsettir ?  

     Þau reyna að halda andlitinu útávið, en við, sem þekkjum þau sjáum biturðina og vonleysið í augunum.  Nýverið braut stelpan litla eina hurðina af eldhúsinnréttingunni (fyrirferðamikið barn), og ég spurði hvort þau ætluðu ekki að laga hana fyrir Jól.  "Nei, það tekur því ekki" var svarið, "þetta er allt farið hvort sem er".

     "Aumingjaskapur", gæti einhver sagt, en ég veit að svona er komið fyrir mörgum nú um mundir, fólk ætlar að reyna að þrauka Jólin, en sér enga framtíð eftir það.

     Og ekki ætla ráðamenn þjóðarinnar að gera mikið til að hjálpa, ráðaleysið og kjarkleysið er algjört.  Þeir dæma þjóðina til kjaraskerðingar, sem flytur okkur 40 ár aftur í fortíð, sem flestir vildu gleyma, en "geta ekki" lækkað ofurlaun sín, "Vegna þess að það vantar lög til þess", aumingja fólkið.  Og hvar eru þeir sem störtuðu þessu öllu saman ?, í útlöndum, í lúxusíbúðunum sínum.  Þeir hafa vit á að láta ekki sjá sig hér heima.  Og hvað með ráðamenn þjóðarinnar, sem áttu að gæta hagsmuna okkar ?.  Þeir halda dauðahaldi í mjúka stólana sína, og harðneita að taka á sig nokkra ábyrgð.

  "Pöpullinn skal borga" segja þeir, fyrir hvað ?, jú fyrir að hafa trúað og treyst þessu fólki, og ímynda okkur að  eftir sextíu ára baráttu, væri Íslenska þjóðin loksins að uppskera betra líf, og frelsi.  En í staðinn hefur sparnaði og eignum þjóðarinnar verið stolið, og okkur gert að axla skuldaklafa um ókomna tíð.

     Hafi ríkisstjórnin ekki dug í sér til að gera "eigur" Útrásarvíkinganna, upptækar ti ríkissjóðs, ættum við að fjölmenna og taka þessi hús, frekar en að láta þau standa sem minnismerki um niðurlægingu þjóðarinnar, og sigurtákn þjófanna.

     "Megi þjófarnir þjást eins og þeir ætla þjóðinni að þjást"!  

Burt með spillingaröflin!

Burt með handónýtt þing !

Burt með ofurlaunafólkið !

Heim með glæpalýðin !

Í fangelsi með landráðamennina ! 

 

 

 

 

 

 


Úrelt ?

Er Járnblendiverksmiðjan ekki löngu orðin úrelt ?, og tími kominn til að loka henni ?
Hún lítur út eins og einhver fornaldar ófreskja frá austur - Evrópu, spúandi eldi (sjá mynd með fréttinni) og eimyrju yfir nágrennið.
Og við hliðina á snyrtilegu álverinu er hryllingurinn enn meira áberandi.
mbl.is Sprenging í Járnblendinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukið atvinnuleysi, minni menntun.

Var að koma heim, og kveikti á sjónvarpinu. Haldiði ekki að Össur iðnaðarráðherra hafi ekki verið gestur hjá Sigmundi Erni !
Þar með var kvöldið ónýtt hjá mér. Ég held að hann sé einhver ónýtasti ráðherra ever, og hann ætti að eyða meiri tíma í glasi við tölvuna sína, þá er að minnsta kosti hægt að hlægja að honum.
Ein af lausnum hans við atvinnuleysi og kreppu, sem er nú, er að minnka menntunarkröfur til fólks, sem þýðir lægri laun til þeirra fáu sem fá vinnu. Meira atvinnuleysi hjá menntafólki. Meira atvinnuleysi hjá kennarastéttinni. Og minna álit út á við á fagmennsku Íslendinga.
Hvað er ég að tala um ? Þetta: http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=1446&Itemid= Þrátt fyrir að heilsársnám sé til staðar, verður boðið uppá einskonar "Skemmri skírn", og svo er lofað "réttindum", sem væntanlega ráðherra ferðamála gefur ! Félag leiðsögumanna hefur ályktað gegn þessu námi, eins og hér sést: http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=1471&Itemid= það sama hafa ýmsir málsmetandi gert einnig: http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=1476&Itemid=
Einhver kynni að segja að þetta sé ekki á valdi Ferðamálaráðherra, heldur Menntamálaráðherra, en auðvitað gerist ekkert svona nema með samþykki ferðamálaráðherra. Ég hef skrifað þeim báðum bréf, þar sem ég mótmæli þessu, en ekki fengið svar ennþá, og á satt að segja ekki von á að það berist.
Ef það að skrúfa niður mennta og gæða kröfur til fólksins og þar með minnka trúverðugleika Íslendinga í augum útlendinga er þeirra eina svar við yfirstandandi erfiðleikum, held ég að þau ættu að finna sér annað starf. Það gerir ekkert annað en að auka enn á eymd þeirra sem þurfa að byggja upp landið á ný: Blórabögglanna.
Nú, er frekar en nokkru sinni fyrr krafa um menntun fólks í atvinnulífinu mikilvæg. Við þekkjum hvað það kostar að hafa fúskara í vinnu, við þekkjum það úr Svörtuloftum. En frekar en að læra af því, og auka veg menntunnar, ætla yfirvöld að lækka menntunarkröfur til fagfólks og selja prófgráður og "réttindi" á niðursettu verði, svo atvinnurekendur geti keypt þjónustu "skrílsins" á útsölu. Og drífa í því, því þann 1. Ágúst tók gildi hér á landi staðall um menntun leiðsögumanna, og þetta er langt undir honum.

Ég hvet alla leiðsögumenn til að mæta í Menntaskólann í Kópavogi, þegar inntökupróf fara fram, og mótmæla þessu, og útskýra fyrir þeim sem ætla að taka próf, að þetta er ekki rétta leiðin til vinsælda.

Börkur Hrólfsson, faglærður leiðsögumaður.
http://www.icelandguide.is/guides/2006/05/boerkur_hrolfsson.html


"Við þurfum að vinna þessi verk núna" !!

Búinn að gera í buxurnarAuðvitað, þó fyrr hefði verið. Er maðurinn loksins núna, eftir meir en tvo mánuði, að sjá að það þarf að vinna fljótt ?!Tilgangur með mótmælum gegn stjórninni, hlýtur að vera að koma stjórninni frá, og því lengur sem hún strögglar og þráast við, því meiri byr í segl stjórnar andstöðunnar. Ég held að í stað þess að fólk slaki á í mótmælum, ætti Árni og félagar hans í stjórninni að skammast sín, og segja af sér.Ég er alveg viss um að það finnast einhversstaðar beljurassar fyrir sæmilega edrú dýralæknir. Ég held að Árni ætti að leita að þeim. Honum virðist hvort eð er líða best í djúpum skít, búinn að drulla uppá bak, og gerir ekkert til að reyna að þrífa sig.
mbl.is Þarf að stilla mótmælum í hóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er tækifæri !!

Björgúlfur kom á Einkaþotunni "okkar" í nótt.  Væri ekki alveg tilvalið að fara út á flugvöll og "kyrrsetja" vélina ?  hann getur bara notað almennt flug eins og við hin.  Síðan skulum við bjóða vélina upp, og láta andvirðið renna í ríkissjóð.

flug3

 


Það þarf engin lög !!

Auðvitað vill kjararáð ekki lækka launin, það væri að brjóta lög.
Geir Haði og Svika - Solla gætu bara sem best afþkkað, eða skilað tilbaka, góðum hluta launanna sinna, segjum 25%.
Og svo gætu hinir aularnir í ofurlaunastéttinni fylgt þessu góða fordæmi. Þau gætu byrjað á að skila inn hluta launanna frá í gær.
Vilji er allt sem þarf, nú er tækifæri til að sýna gott fordæmi. En auðvitað ætlar þetta fólk ekki að lækka laun sín, heldur að blóðmjólka aumann lýðinn.
B-)
mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farin að undirbúa kosningar

Eitthvað finnst mér Svika - Solla vera farin að undirbúa kosningar.
mbl.is Óvarlega talað í upphafi bankakreppunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við sama heygarðshornið

Maðurinn er enn við sama heygarðshornið, nú telur hann sig yfir það hafinn að svara þinginu. Eru ekki einhverjar reglur um þessi mál ??
Maðurinn er greinilega með algert mikilmennskubrjálæði, og alveg nauðsynlegt að koma honum á viðeigandi stofnun.
Getur þingnefndin ekki bara farið til hans ??
mbl.is Davíð frestar komu sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott í kreppunni !!

Kreppuráð !!Menn verða að grípa til allra mögulegra ráða í kreppunni.

Enn eitt kennitölusvindlið ??

Það var nú svosem við þessu að búast: http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=1466&Itemid=


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband