Er það nú frétt ?

Hvenær ætla konur að átta sig á hlutverki sínu ?
Það er að vera körlum til ánægju, og gera eins og karlar vilja! Auðvitað er það hluti af starfinu að sofa hjá yfirmanninum, það á ekki að þurfa að setja það í starfslýsingu.
Þær sem geta ekki samþykkt það, eiga bara að vera heima, og sofa hjá manni sínum ! Hann er jú yfirmaður þeirra !
mbl.is Hluti af starfinu að sofa hjá Jagger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru núna vinir Lúkasar ?

Sáuðið þetta ?, maðurinn drap hundinn (leðurblökur eru kallaðar fljúgandi hundar) með berum höndunum. Og lýðurinn hyllti hann ! Þetta eru nú ljótu dýraníðingarnir, þessir Ameríkanar !!
mbl.is Drap leðurblöku í miðjum leik (myndband)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fá þá hingað !

Hér er nóg til að kveða niður. Allskyns draugar, djöflar og Dímonar, sem ganga logandi ljósum um samfélag okkar.
Íslenskir prestar eru handónýtir í þessu, geta ekkert annað en strokið fermingarstelpum um hupp og kvið, og fara undan í flæmingi, ef beðnir um að bægja frá þeim árum og óvættum, sem herja á okkur og ríða hér röftum.

mbl.is Nóg að gera hjá dönskum særingamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arnarvatnsheiði og Norðlingaholt ??

Er norðlingaholt á Arnarvatnsheiði ??
mbl.is Arnarvatnsheiði lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að einhver hugsar um hag neytenda !

Mér finnst að eftirlitsnefnd EFTA eigi að líta á ósamræmi í stærð ostsneiða og brauðs, það verður vart unað við núverandi ástand í þeim efnum lengur.
mbl.is ESA vill að Ísland innleiði reglugerð sem sögð er óþörf hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo át hann sjálfann sig á eftir !

Eftir að hafa afhjúpað sjálfan sig, át hann tertu, sem var skreytt myndum af honum sjálfum.
Er þetta ekki einhverskonar ,,sjálfsblæti" ?
mbl.is Clinton afhjúpar styttu af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2 útköll á 2 dögum !

Nú kannast ég við mitt fólk, hvílíkir aular eru þarna á ferð. Stórhættulegt fólk, innan um góða og vana veiðimenn. Þessir bjánar eru þeir, sem skemma fyrir hinum, sem fara um af kunnáttu, og virðingu fyrir bráð og landi.

Ekki liðnir tveir dagar, og þegar búið að leita að einum vanbúnum og svöngum veiðimanni.
Annar búinn að skjóta vin sinn.
Einn tekinn með ólögleg vopn, (Hljóðdeyfir ??!!).
Og nokkrir kærðir fyrir veiðar á friðuðu landi, yfirgang við landeigendur og utanvega akstur.
þetta fer að verða spennandi!


mbl.is Slasaðist ekki alvarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldra Whisky, betri bílar, yngri konur !

Rúnar Júl vissi þetta nú fyrir löngu !
mbl.is Mælt með að konan sé yngri og klárari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá honum !

Það losnar þá um eitt starf, það ber að þakka.
mbl.is Ætlar að hætta í vinnunni eftir lottóvinning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílíkt endemis bull !

Samkvæmt reglum þarf maður núna að gera grein fyrir öllum greiðslum, og fylla út eyðublað fyrir Ríkislögreglustjóra, þegar maður borgar reikninga. Þetta sagði mér starfskona SP fjármögnunar.
Um daginn borgaði ég með Debet korti reikning frá SP fjármognun, reikningurinn var uppá 103 þúsund krónur. Þegar konan hafði fengið kortið mitt í hendurnar, rétti hún mér eyðublað, þar sem mér var gert að útskýra í smáatriðum hvaðan peningarnir voru komnir, hvar ég ætti heima, hvar ég héldi til, við hvað ég starfaði, hvort ég væri að vinna fyrir einhvern annann, og ýmislegt fleira, sem mér fannst yfirvöldum bara ekkert koma við. Allt var þetta gert í nafni fjármálaeftirlitsins og lögreglustjóra, til varnar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi. Ég átti ekki gott með að mótmæla, þar sem afgreiðslukonan hélt Debetkortinu mínu í einskonar gíslingu. Hún sagði jafnframt, að nú þyrfti að Fylla þetta eyðublað út alltaf þegar greitt væri inná reikninga einhvers.
Miðað við þetta held ég að tilkynningum eigi eftir að fjölga heilan helling.
Í mótmælaskyni bullaði ég einhver ósköp á eyðublaðinu, eftir á að hyggja hefði ég átt að segja eins og er: að peningarnir væru fengnir með yfirdrætti á okurvöxtum.
mbl.is 520 tilkynningar um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband