13.1.2009 | 16:45
Til að læra fjármálastjórn ?
![]() |
Íslendingar halda til Simbabve |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.1.2009 | 16:41
Þetta var nú vitað
B-)
![]() |
Kýr rólegar í jarðskjálfta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.1.2009 | 22:06
Og svo
![]() |
Veitingastaður sviptur rekstarleyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2009 | 13:28
Alltaf kemu betur í ljós
![]() |
Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.1.2009 | 19:18
"Haldiði kjafti"!!
Samkv. fréttum stöðvar tvö, eru miklar breytingar framundan í ríkisstjórn.Allar fréttastofur landsins gengu á stjórnarliða fyrir jól, og spurðu hvort breytinga væri að vænta um áramótin. Svarið var alltaf "Nei, ekki svo ég viti, nei". Ég sá Bjarna Ben svara nei, þegar hann var spurður hvort hann væri að undirbúa sig fyrir ráðherradóm. Nú eru "staðfestar" heimildir um að breytingar séu framundan. Nú á að reyna að róa "skrílinn", og skifta þeim óvinsælustu út. Sem sagt: ný andlit, sama sukkið! En þetta er ekki það sem þjóðin vill, þjóðin vill kosningar, þjóðin vill fá að vera með í ráðum um hverjir sitja við völd í landinu. En svarið sem þjóðin fær, gæti alt eins verið:
"Haldiði kjafti, skiftið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við"! Haldið áfram að lepja dauðann úr skel, og borga fyrir sukk glæpalýðsins, og aðgerðaleysi okkar".
Er þetta það, sem við viljum ?, eða hvað? Ég segi nei!!
Burt með spillingarliðið!. Burt með ríkisstjórnina!.
Við viljum ríkisstjórn, sem þorir!!
11.1.2009 | 14:11
"Guggan verður áfram gul" Treystir einhver þessum manni.
Heldur einhver virkilega að hann se "frelsaður" ?
Er fólk búið að gleyma loforðunum sem hann hefur gefið í gegnum tíðina, en ekki efnt ?
Tók hann ekki fullann þátt í arðráni bankanna ? Og hljóp svo frá borði, þegar allt var að fara til helvítis, og lék "góða gæann".
Þessi maður ætti að hafa hægt um sig, búinn að flytja eignir og veiðiheimildir úr landi í stórum stíl.
Ég tel að hann sé einn af þeim, sem landráðalög gætu hugsanlega átt við.
![]() |
Þjóðin á að kjósa um aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2009 | 21:03
Hvar varst þú ??
Var í Goðafræðimiðstöðinni í dag
:http://www.touristguide.is/index.php?option=content&task=view&id=1511&Itemid=
En rétt eftir tvö fór ég að tygja mig til Austurvallar. Þar var fjöldi fólks samankominn, og einhvernveginn var sérstakur andi svífandi yfir í dag. Samheldnin, undirliggjandi reiðin,

og baráttuviljinn var næstum áþreifanlegt. Ræðumaður dagsins var án efa Lárus p. Birgisson, sem talaði með eldmóð hins reiða manns. Mann langaði næstum til að fara og rífa Alþingishúsið til grunna, eftir að hafa hlustað á hann, slík voru áhrifin. Þarna voru með öðrum: Hermann, ástmögur Svía, og Börkur hinn atvinnulausi.

Einnig var Dögg á skrifstofunni þarna:

Og Hlín frænka mín, (verð að monta mig af frændseminni)
Ingi Gunnar leit til

himins
Lára Hanna og Þórhildur, Glæsilegar !!

Stefán Helgi fréttahaukur leiðsögumanna var mættur:

Leit við Í Iðnó á heimleiðinni, og hlustaði um stund, en gafst fljótt upp, því þar var ekkert nema lyga áróður Hamas að heyra. Ég held að þetta fólk viti ekkert um hvað stríðið í Ísrael snýst.


En hvar varst þú??
Varst þú kannski í Kringlunni, eins og margir ? Varðar þig ekkert um ástand efnahagsmála á Íslandi ??
Ertu kannski bara helvíti sáttur með aðgerðaleysi ráðamanna gagnvart þeim, sem sett hafa þjóðina á hausinn ??
Eða "Sparnaðar ráðstafanir" ríkisstjórnarinnar ?? Gamalt fólk flutt hreppaflutningum, (einskonar Breiðuvíkur gjörningur) til að "spara" ??
Er þetta það sem við eigum skilið ??
Að eyða ævinni í að vinna eins og skepnur, til að Fjárglæframenn í skjóli stjórnvalda geti gert eigur okkar einskins virði, og gott betur. Komið okkur í stórskuld, og þegar við höfum skilað ævistarfi okkar til uppbyggingar þjóðfélagsins, þá verða brotin á okkur öll mannréttindi, og við flutt nauðungarflutningum eitthvert sem hentar auðvaldinu hverju sinni. Að sjálfsögðu verður eignaréttur okkar að engu gerður. Og svo er ráðist á hin lægs launuðu okkar, ræstinga fólk á sjúkrastofnunum, og atlaga gerð að tilveru þess.
Ath. ekki er hugmyndin að leggja störf þeirra niður, heldur að bjóða þau út erlendis, til að reyna að lækka þessi lágu laun enn meir. Er þetta það sem þú vilt ??
Ef þú varst í Kringlunni, eða límdur við sjónvarpið í dag, þá skaltu muna að þú átt tilveru þína, og velferð undir fólki, sem forgangsraðar rétt, og berst fyrir bættum kjörum og réttlæti með þeim einu aðferðum sem duga : SAMSTÖÐU!!
Þetta: http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/ ætti að vera skyldulesning allra.
![]() |
Fjórtándi fundurinn á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2009 | 11:17
Ríkið að pína niður laun í landinu.
Svei þér, Guðlaugur Þór, og þínu duglausa hyski !
![]() |
„Það er ekkert heilagt“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2009 | 00:33
Hræddir ?
Imba fordæmir !!
![]() |
Ingibjörg í Jerusalem Post |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2009 | 16:50
Þvílíkt rugl !
Ég get ekki hætt að velta fyrir mér ýmsu varðandi þessa vitleysu, sem ég tel Bakkafjöruhöfn vera.
Fyrir það fyrsta, þá styttir það ekki ferðatímann til Reykjavíkur sem nokkru nemur, kannski 30 - 40 mínútur.
Eftir u.þ.b. klukkutíma siglingu á Bakka, tekur við tveggja tíma akstur til Reykjavíkur, um einhvern hættulegasta veg Íslands, Þjóðveg númer eitt, á Suðurlandi. Svo samtals er þetta að minnsta kosti 4 tíma ferð, með lestun og losun. Og u.þ.b. 100 Km. lengri keyrsla. Og svo er það þetta með að byggja, og viðhalda höfn á Landeyja sandi...
Væri ekki nær, að kaupa eins og einn eða jafnvel tvo nýja "Herjólfa", og fjölga ferðum til Þorlákshafnar ?
Þá þyrfti ekki að reka tvær ferjuhafnir á Suðurlandi, eitthvað myndi sparast við það. Það þarf hvort eð er að kaupa nýjan "Herjólf". Öryggi yrði meira, því ekki þyrfti að aka um Suðurland til að komast til Reykjavíkur. Örugglega 90% prósent allra, sem ferðast með Herjólfi, eru að fara til Reykjavíkur, er réttlætanlegt að fara útí vafasamar hafnarframkvæmdir fyrir hin 10 ?. Og svo er verið að skoða gamla (úrelta ?) ferju, lærðu menn ekkert af Grímseyjarferju málinu ?
Mér finnst þetta vera eitthvað mesta peninga sukk, sem viðgengst núna í kreppunni, og fyndist nær að fresta, eða slá þetta af, og nota peningana í eitthvað þarfara. T.D. heilbrigðis og bótakerfið.
![]() |
Vestmannaeyjabær með danska ferju í sigtinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)