24.1.2009 | 04:45
Skrýtin vika
Mikið er búið að gerast í vikunni, sumt gott, annað miður.Ég hef aldrei verið Framsóknarmaður, eða hrifin af Framsóknarflokknum. Hef reyndar haft frekar skömm á honum, en hitt. En nú ber svo við, að mér finnst ég verða að hrósa Framsóknarmönnum. Hrós fyrir að yngja upp, fyrir að segja gömlu forystunni upp störfum, og setja málin í hendur á nýju fólki. Vonandi verða nýjar og betri áherslur hjá hinum "Nýja Framsóknarflokki". Og ekki var lengi að bíða eftir að hinir "nýju" létu til sín taka. Gáfu út yfirlýsingu um að styðja minnihluta stjórn, og verja hana falli, fram að kosningum. Það má deila um hversu snjallt þetta er, en eitt er víst, að þeir vilja breytingar, og eru tilbúnir til að láta verkin tala, núna !.Ég fór niður í bæ, á miðvikudagsnóttina, að fylgjast með. Flest alvöru fólk var að yfirgefa svæðið. Eftir voru "góðkunningjar" löggunnar. Og eins og sjónvarpið sýndi á fimmtudagskvöldið, voru sumir dálítið skrautlegir. Þessi reyndi að stilla til friðar í byrjun, og bað fólk að sýna stillingu, og hlífa lögreglumönnunum.
Seinna, og kannski nokkrum bjórum seinna, var hann farinn að ögra loggunni, og þrátt fyrir að þeir reyndu að ýta honum frá mjúklega, þá hætti hann ekki. Að lokum endaði þetta með því að löggan var farinn að búa sig undir að gera áhlaup á lýðinn. Þá kom til kasta fólks, sem hvatti gaurinn til að "slaka á" og hætta að espa lögguna, því þetta væru "friðsöm mótmæli". Þegar gaurinn lét sér ekki segjast, missti einn "mótmælandinn" þolinmæðina, og æddi að gaunum, og öskraði: "hættu þessu, helvítis fíflið þitt, þetta eru friðsamleg mótmæli", og skallaði hann í andlitið. Eins og við var að búast, var þetta bara eins og að skvetta olíu á eld, og áttu nærstaddir fullt í fangi með að koma í veg fyri slagsmál þeirra "friðsömu".
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.