Færsluflokkur: Bloggar

Er ég orðinn ruglaður ??

Allt í einu fannst mér allt, sem Davíð sagði meika sens. Er hann þá góði kallinn eftir allt saman ??
Eða er kannski búið að rugla mig gjörsamlega, eins og hann segir ?

mbl.is Skorað á Davíð á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnin ekki upptæk ??

Það kemur hvergi fram í fréttinni að vopn hafi verið gerð upptæk. Ætli hann hafi ennþá vopnin undir höndum, eða geymi þau kannski í ólæstum kofanum sínum ?. Til að nota næst þegar hann fær brjálæðiskast.


mbl.is Hótaði að skjóta mann með fjárbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fróðlegt væri að reikna út hvað okkar ,,Madoffar" fengju langann dóm.

Hvað fengju okkar fjárglæframenn langann dóm, miðað við ,,höfðatölu"?
Við erum u.þ.b. 1/1000 af Bandaríkjamönnum. Ég er hræddur um að þær upphæðir sem Madoff sveik út, séu smá aurar miðað við hvað svikið hefur verið af Íslensku þjóðinni ! Miðað við höfðatölu, að sjálfsögðu !


mbl.is Madoff í 150 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið að gera í gröfubisnissnum

Nema náttúrulega til að rífa hús, og grafa bíla.
mbl.is Óvenjulegur hreiðurstaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finns aldrei

Þetta er komið í gám á leið til Póllands. ,,Who cares"? tryggingarnar (við) borga.
mbl.is Verðmætum stolið af vinnusvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek ofan fyrir þér !

En það er rétt, að ,,þetta fer alveg með húsin"
mbl.is Biður nágranna afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra með pung!

Það er dálítið gaman að þessu, kallinn helvíti hress, kominn á áttræðis aldurinn.
Það er nú eitthvað annað með Jóhönnu okkar, sem brosir helst aldrei, eða gerir neitt sem hægt er að brosa að.
Haldiði ekki að það væri töff, ef hún sýndi á sér ,,mannlegu" hliðarnar ? Og byði ,,fylgdarkonum" í
brjáluð partý í ráðherrabústaðinn?, eða striplaðist í bústaðnum og klipi þjónustustúlkur í rassinn?.
Og sýndi að hún er með pung !!
mbl.is Berlusconi í nýju hneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi ?, hvað er nú það ?

Mannréttindi hafa verið brotin á Íslensku þjóðinni öldum saman, og stjórnvöld hafa ekki kippt sér upp við að fá á sig dóma frá alþjóðadómstólum. Þeim hefur verið skítsama um álit annara, þeirra sem þau nota nú sem tylliástæðu til enn nýrra brota gegn þegnum sínum, í Icesafe málinu t.d..
Hvað með kvótalögin ?, málfrelsi þegnanna er skert, Trúfrelsi er heft, fólki er mismunað á grunni líkamlegs atgerfis, og á grunni þjóðernis. þá hefur stjórnvöldum dottið í hug, að flytja fólk nauðungarflutningum á milli svæða, svipað og sovét gerði á tímum Gulagsins, og lengi má telja.
Svo að þó að atkvæði Reykvíkings sé ekki jafngilt atkvæði annara, eru smámunir miðað við mörg önnur mannréttindabrot stjórnvalda á Íslandi.


mbl.is Missti mannréttindi við að flytja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsaka þá

Er ekki full ástæða til að rannsaka þátt þeirra í hruninu, og veita þeim ,,stöðu grunaðra"?
Út með þá!!
mbl.is Neituðu að hætta störfum fyrir ríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnið það þá í verki !

Losið ykkur við Valtýr, og ráðuneytisstjórana. Borgið aðstoðarmanninum laun. Græjið góða aðstöðu, nóg er af húsnæði. Útvegið góð verkfæri.
Í stuttu máli, farið að hlusta, og gerið það sem þarf! Hættið að reyna að láta þetta hverfa af sjálfu sér!, það gerir það ekki !!
Sýnið okkur, sem kusu ykkur til starfa, að þið eruð fólk orða ykkar, og sýnið heiminum að þið séuð marktæk !
Annars verður önnur ,,búsáhaldabylting", og það veit sá sem allt veit, að við þurfum síst á að halda núna.

Reynið að taka ykkur saman í andlitinu, og fara að snúa ykkur að því sem er aðalmálið núna.
Og látið ykkur ekki dreyma um að taka ykkur sumarfrí, það er neyðarástand !, og þá tekur maður ekki sumarfrí !


mbl.is Ríkisstjórn styður Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband