Færsluflokkur: Bloggar

Þetta er nú meiri skríllinn.

Hefði ekki verið nær, að leyfa Ráðherranum að tala fyrst, og svo garga á hana eftirá, ef ástæða væri til ?
mbl.is Gerðu hróp að ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skil ekki alveg

Hvernig getur starfsemi hótelsins verið óbreytt, á meðan Neskjör, eigandi lóðarinnar bannar umferð um lóðina, og þar með aðgang að aðalinngangi hótelsins.

mbl.is Starfsemi Fosshótels Baróns óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Gísli !

Það mátti reyna það, honum hefur oft tekist betur upp, en það var nokkuð ljóst strax að þetta myndi ekki takast.
http://www.wannachallenge.de/Challenge/Video/3533/Mit-Auto-ueber-Wasser-fahren

Skrýtið

Að það þurfi að segja fólki á Íslandi, hvernig á að bregðast við óveðri.
mbl.is Óveður í aðsigi - fólk gangi frá lausum munum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir gefast ekki upp !

http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/7216912.stm

Listin að afbaka málshætti !

Einu sinn vann ég með manni, sem var alsendis fyrirmunað að koma óbrengluðum málshætti eða frasa frá sér. Nú er ég búinn að finna konu, sem tekur honum langt fram:
http://aslaugblondal.blog.is/blog/aslaugblondal/#entry-960078

Iss, hún hefur ekki höll Hans !

     Við Íslendingar eigum okkar Taj Mahal, hvítt, umvafið vatni eins og í Indlandi.

  Byggt úr rándýrri innfluttri hvítri steypu, tákn hreinleikans og heiðarleikans er húsið minnismerki um stjórnartíð mesta skörungs, sem borgin hefur alið, um Hann.  

   Tærblátt vatnið, tákn un gegnsæi og réttsýni Hans, sem sér sólina Smile speglast eins og hún rísi úr djúpinu, eins og hún sé sköpuð til þess eins að skína á ásjónu Hans, sem byggði höll þessa sjálfum Sér til dýrðar.

  Súlur rísa úr djúpinu, og minna á bústaði guðanna á Akrópólis, bara ennþá glæsilegri.Og táknræn brúin, eins og Bifröst, brú milli manna og guða, leiðir þig inn í höll þessa yfir djúpið.Og inni er Ísland, og þar var Hann, yfir öllum, yfir landinu, sem lá fyrir fótum Hans, og gerir enn.  

Júlía hefur ekki séð Ráðhús Reykjavíkur, höll Davíðs Devil


mbl.is Orðlaus við fegurstu byggingu heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað finnst Illuga ?

Ætli Illuga Jökulssyni þyki þetta fyndið ?
mbl.is Hótuðu fólki lífláti með plastbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslynt fólk, þessir Íslendingar !


Öll þjóðin, sem er u.þ.b. 85% skráð í ríkiskirkjuna, mótmælendur, er komin útaf Katólskum biskup.
Katólikkar, sem og önnur trúarbrögð voru bonnuð í meira en 300 ár.
,,Verndari hinnar íslensku Ríkiskirkju" er annarsvegar fyrrverandi kommúnisti og trúleysingi, og hinsvegar fráskilin útlenskur gyðingur.
Íslendinga voru fyrstir þjóða til að kjósa einstæða móðir til forseta.
Íslendingar voru fyrstir þjóða til að eignast samkynhneigðan forsætisráðherra.
Og nú urðum við næstum því fyrst þjóða til að eignast ríkisstjórn með tvo samkynnhneigða ráðherra.

http://www.visir.is/article/20091001/FRETTIR01/346124075


Alveg eins og hér heima

Margir voru búnir að vara við ræningjunum, sem rændu bankana hér, en enginn hlustaði.
mbl.is Serbar létu sænska lögreglu vita fyrir mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband