2.6.2009 | 20:15
Útlendingur
Enginn Íslendingur, með snefil af sómakennd, myndi taka mynd af höfuðstöðvum fyrrv. Glitnis !
B-)
![]() |
Leitað að eiganda myndavélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.6.2009 | 11:23
Tertuhnífar ??
![]() |
Safn fékk franska flökunarhnífa að gjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2009 | 09:40
Gott !
Samkeppnin verður vonandi til góðs. Svo er líka eitt besta tjaldsvæði landsins á Kirkjubæjarklaustri, og ef nú kemur veitingahús með eðlilegu verðlagi, þá ......
![]() |
Ferðafólk kemur í stað fláningsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 14:37
Opið bréf til Gylfa Sigfússonar.
DV segir frá því að þú hafir boðið blaðamanni DV. starf, og látið er að því lyggja, að það sé í skiftum fyrir þögn um málefni þín og konu þinnar. Blaðamaðurinn þáði ekki starfið.
Ég hef ekkert að gera eins og er, og sé ekki fram á mjög bjarta daga.
Er jobbið ennþá laust ? Ég er til, ef þokkaleg laun fylgja. Við erum ekkert að tala um bankastjóralaun eins og Snorri W. fékk, ég geri mig ánægðan með 10% af því. Vonandi er ekki mikil vinna í jobbinu, því ég þarf að sinna áhugamálunum, ég er viss um að við getum fundið eitthvað út úr því.
Hvað varðar hæfileika mína, þá er ég gersamlega óhæfur til að stjórna eða að taka á mig fjárhagslega ábyrgð, eitthvað sem er mikils metið hjá ykkur, ekki satt. Hinsvegar kann ég að keyra dýra bíla, og snjósleða, líka mótorhjól. Svo við gætum að ríkra manna hætti verið saman með dótakassa, eru ekki skemmur Eimskip hálf tómar hvort eð er ?
Ég lofa að ég skal ekki segja frá eignaunsvifum þínum og konu þinnar, en þá verður þú líka að þegja um mín umsvif, Ok!.
Ef þú vilt ráða mig, hafðu samband, ég kem að vörmu spori.
P.S.
Mér þótti ósmekklegt af DV. að gefa í skyn, að þú værir að bjóða mútur, við skulum kalla þetta ,,starfsbyrjunar samning".
Þinn verðandi viðskiftafélagi, og ,,Athafnamaður"
Börkur Hrólfsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2009 | 16:23
Grótta er friðuð frá og með 1. Maí !
Ég treysti því, að fólkið hafi verið kært fyrir að virða að vettugi bann við ferðum í Gróttu, og svo má spyrja hversu ábyrgir foreldrar þau eru. Kannski eitthvað fyrir barnavernd.
Allavega finnst mér það alger sóun á fjármagni slökkviliðsins, að senda slöngubáta eftir þeim, þau hefðu átt að bíða næstu fjöru.
![]() |
Föst út í Gróttu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2009 | 14:50
Árni Matt ?
![]() |
Dagar Lífar taldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2009 | 12:32
Hvað með hin lánin ?
Bílalánin, mótorhjólalánin, vélsleðalánin, hjólhýsalánin eða sumarhúsalánin ! Þetta eru lánin, sem eru að gera flestum lífið erfitt, fólk situr uppi með þessi helv.... lán, og ef það reynir að hætta, þá fær það margra milljóna skuld í hausinn strax ! Það má ekki gleyma þessu, og að þetta eru lánin, sem gera það að verkum að fólk getur ekki borgað húsnæðislánin.
![]() |
Vill neyðarlög um íbúðalán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2009 | 12:22
Þetta er ekki kona !
Þetta er kall !
Og maðurinn með sprautuna er læknir á geðsjúkrahúsi. Hann er sveittur eftir að hafa elt kallinn um allt hús, áður en honum tókst að sprauta hann niður. En hinn var orðinn geðveikur af því að hugsa um heiðurslistamannalaun Þráins, og tapaði sér alveg, og heimtaði réttlæti. En að sjálfsögðu vita allir að það er stórhættuleg þráhyggja að búast við því hér á landi.
Þess vegna varð að sprauta manninn niður, áður en næði að koma boðskap sínum til fjöldans.
Þetta er ekki kona í fóstureyðingu. Heldur hin Íslenska þjóð, kylliflöt eftir náðarstungu hins Íslenska pólitíkusar.
![]() |
Fádæma sóðaleg auglýsing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.4.2009 | 21:01
Samfylking og VG geta ekki unnið saman
Það sannast enn og einu sinni, að núverandi stjórn getur EKKI unnið saman.
Fyrst sagði umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir (hversvegna í ósköpunum er hún ráðherra ?), að ekki kæmi til greina að hefja olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Össur og Samfylkingin eru á öðru máli, og ég tel að yfirlýsing Kolbrúnar sé beinlínis hættuleg efnahag Íslands.
Og nú enn og aftur kemur í ljós að það er himin og haf á milli áherslna hjá þessum flokkum. Össur, og Samfylkingin vill ganga í Evrópusambandið, og taka upp Evru, það er mér að skapi.
En Svanhvít Svavarsdóttir þvertók fyrir að það kæmi til greina !
Hvaða stjórn erum við þá að sjá eftir kosningar ? Sjálfstæðismenn og Framsókn ??
Eða Sjálfstæðismenn og Samfylking ??
15.4.2009 | 18:08
Sniðug og góð hugmynd
Vonandi verður þetta ekki kæft af afturhaldsöflum og kerfisköllum, eins og svo margar nýjar hugmyndir um að nýta þetta land til framfærslu.
![]() |
Vill fá að flytja ferðamenn í Surtsey |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)