4.10.2009 | 23:51
Iss, hún hefur ekki höll Hans !
Við Íslendingar eigum okkar Taj Mahal, hvítt, umvafið vatni eins og í Indlandi.
Byggt úr rándýrri innfluttri hvítri steypu, tákn hreinleikans og heiðarleikans er húsið minnismerki um stjórnartíð mesta skörungs, sem borgin hefur alið, um Hann.
Tærblátt vatnið, tákn un gegnsæi og réttsýni Hans, sem sér sólina speglast eins og hún rísi úr djúpinu, eins og hún sé sköpuð til þess eins að skína á ásjónu Hans, sem byggði höll þessa sjálfum Sér til dýrðar.
Súlur rísa úr djúpinu, og minna á bústaði guðanna á Akrópólis, bara ennþá glæsilegri.Og táknræn brúin, eins og Bifröst, brú milli manna og guða, leiðir þig inn í höll þessa yfir djúpið.Og inni er Ísland, og þar var Hann, yfir öllum, yfir landinu, sem lá fyrir fótum Hans, og gerir enn.
Júlía hefur ekki séð Ráðhús Reykjavíkur, höll Davíðs
Orðlaus við fegurstu byggingu heims | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2009 | 20:28
Hvað finnst Illuga ?
Hótuðu fólki lífláti með plastbyssu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2009 | 11:52
Frjálslynt fólk, þessir Íslendingar !
Öll þjóðin, sem er u.þ.b. 85% skráð í ríkiskirkjuna, mótmælendur, er komin útaf Katólskum biskup.
Katólikkar, sem og önnur trúarbrögð voru bonnuð í meira en 300 ár.
,,Verndari hinnar íslensku Ríkiskirkju" er annarsvegar fyrrverandi kommúnisti og trúleysingi, og hinsvegar fráskilin útlenskur gyðingur.
Íslendinga voru fyrstir þjóða til að kjósa einstæða móðir til forseta.
Íslendingar voru fyrstir þjóða til að eignast samkynhneigðan forsætisráðherra.
Og nú urðum við næstum því fyrst þjóða til að eignast ríkisstjórn með tvo samkynnhneigða ráðherra.
http://www.visir.is/article/20091001/FRETTIR01/346124075
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2009 | 16:55
Alveg eins og hér heima
Serbar létu sænska lögreglu vita fyrir mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2009 | 09:48
Land elds og íss
http://www.youtube.com/watch?v=qVCpbYtbyTU&feature=related
Eyja kemur úr felum í Jökulsárlóni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2009 | 10:49
Viskubrunnur Íslands !!
Hef sagt það áður, og segi enn:
Viskubrunnur Íslands er á Grænavatni í Mývatnssveit !!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.9.2009 | 13:55
Vonbrigði
Það er ekki eins og ekkert hafi verið reynt: Timburþurrkun, parketgerð, pappírsverksmiðja, kísilverksmiðja, o.fl. Flest af þessu hefur farið á hausinn, eða hætt.
Og ekki hefur vantað hugmyndaflugið: Krókódílarækt, strútarækt, og svo má lengi telja.
Þingeyingar hafa sýnt áræðni í að búa til störf á svæðinu, og má nefna nokkur sem þóttu harla ólíkleg til hagnaðar í upphafi: Jarðböðin, sem almennt eru talin bera af í samanburði við önnur svipuð fyrirtæki, Hvalaskoðun á Húsavík, almennt talin vera sú besta í N. Evrópu, safnaumhverfið á Húsavík, og nú nýjasta hugmynd Húsvíkinga, að fá leifar Náttúrugripasafns Íslands norður og gjarnan má nefna fisskþurrkun, lengst inni í landi, sem mörgum hefði þótt óhusandi hér áður fyrr.
Ég held að Þingeyingum sé vel treystandi til að velja sinn starfsvettvang sjálfir, og að þeir ættu að fá fullan stuðning og styrk valdhafa, annað eins hefur nú verið gert.
Héðinsfjarðargöng, fokdýr framkvæmd, sem gerir ekkert annað en að kalla á meiri framkvæmdir, og óvíst að muni nokkurn tíma skila hagnaði, eða verða til einhvers verulegs gagns. Og ekki má gleyma Landeyjarhöfn í Bakkafjöru, sem mun ekki búa til nein ný störf, og að margra mati mun aðeins auka slysahættu á hættulegasta og mannskæðasta vegi landsins, en kostar milljarða.
Ég held að álver á Bakka yrði hagkvæmara fyrir þjóðarbúið en margar þær framkvæmdir sem ríkið hefur ráðist í að undanförnu, og held að stjórnin ætti að styðja við bakið á þeim hugmyndum.
Viljayfirlýsing ekki framlengd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 13:15
Gott !
Susan Atkins látin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.9.2009 | 13:13
Allt reynt
Heiðarleiki, drengskapur, íþrótta andi, eru hinsvegar orðin ansi sjaldséð í íþróttum.
Markvörður svindlar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 12:32
Engin fararstjóri ?
Ferðamaður steig í hver | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)