Glæpsamleg bílaleiga !

Ég kom að þessy óhappi í dag.  Ég verð að segja að mér finnst hegðun þessarar bílaleigu fyrir neðan allar hellur.
Bíllinn var á mismunandi tegundum af dekkjum, og það að aftan (sem er mun verra en að framan ), og ekki sá ég einn einasta nagla, sem þó hefði átt að vera í hálkunni.
Að leigja tröllajeppa sem þennann til útlendinga, sem hafa sjálfsagt aldrei ekið breyttri bifreið, og að auki á handónýtum dekkjum og án nagla, er náttúrulega bara glæpur.  Ekki bara gagnvart þeim, sem leigði bílinn, heldur einnig gagnvart öðrum vegfarendum.
Þessi leiga er komin með ansi skrautlegann  lista á netinu:   http://www.tripadvisor.com/ShowTopic-g189952-i223-k4463622-Cheap_Jeep_Car_Rental_any_good-Iceland.html
Ekki góð auglýsing fyrir bílaleigur á Íslandi.
IMG_1380
 
 

mbl.is Fór heila veltu á Sólheimasandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband